Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur gefið út brýna viðvörun um að yfirvofandi sókn gegn El Obeid, höfuðborg Norður-Kordofan-héraðs í Súdan, feli í sér hættu á alvarlegum alþjóðlegum glæpum. Hætta sé á að sóknin auki enn frekar mannúðarkreppu sem þegar er skelfileg. Mannréttindastjórinn, Volker Türk, gaf út viðvörun í kjölfar frétta af umtalsverðum liðssafnaði hersveita RSF (Rapid […]
The post Sameinuðu þjóðirnar vara við yfirvofandi hamförum í Súdan appeared first on Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu - Iceland.
Barn og móðir horfa út um glugga í Alsabaat-samfélaginu í Kassala-héraði. Ljósmynd: UNICEF/Ahmed Mohamdeen ElfatihMannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur gefið út brýna viðvörun um að yfirvofandi sókn gegn El Obeid, höfuðborg Norður-Kordofan-héraðs í Súdan, feli í sér hættu á alvarlegum alþjóðlegum glæpum. Hætta sé á að sóknin auki enn frekar mannúðarkreppu sem þegar er skelfileg.
Mannréttindastjórinn, Volker Türk, gaf út viðvörun í kjölfar frétta af umtalsverðum liðssafnaði hersveita RSF (Rapid Support Forces) og bandamanna þeirra í kringum borgina, samhliða aukinni notkun drónaárása og stórskotaliðsárása.
Stríð hefur geisað í Súdan síðan í apríl 2023, þegar bardagar brutust út milli súdanska hersins og RSF, sem áður voru bandamenn. Ástandið þar er nú talið versta mannúðarkreppa heims.
Fólk á flótta í hinu stríðshrjáða Súdan. Mynd UN Photo/Mona Elfateh
Samkvæmt mannúðarmálaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, OCHA, hefur stríðið hrakið meira en 13 milljónir manna á flótta innanlands. Auk þess ramba milljónir til viðbótar á barmi hungursneyðar, en aðgangur að mannúðaraðstoð er verulega takmarkaður víðast hvar í landinu.
Guterres: komið í veg fyrir blóðsúthellingarAðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, lýsti á fimmtudag yfir áhyggjum sínum í gegnum talsmann sinn vegna mögulegrar „yfirvofandi landárásar“.
„Allt of oft í þessum átökum hafa skýrar viðvaranir ekki leitt til samræmdra aðgerða af hálfu alþjóðasamfélagsins,“ segir ennfremur í yfirlýsingunni.
„Aðalframkvæmdastjórinn hvetur alla þá sem hafa áhrif á deiluaðila til að beita þeim til að koma í veg fyrir frekari blóðsúthellingar. Við megum ekki leyfa að hryllingurinn í El Fasher endurtaki sig í El Obeid.“
700.000 manns hafa hrakist á flótta vegna ofbeldis í Darfúr í Súdan. Ljósmynd: © UNICEF/Mohammed Jamal
Drónaárásum fjölgar
Tugir drónaárása hafa verið gerðar á El Obeid undanfarnar tvær vikur, einkum á eldsneytisstöðvar og flutningabíla, sem hafa leitt til dauða almennra borgara og hindrað aðgang að grunnþjónustu.
„Yfirvofandi sókn gegn El Obeid felur í sér hættu á alvarlegum alþjóðlegum glæpum og dýpkar skelfileg áhrif á almenna borgara sem þegar eru í erfiðri stöðu,“ sagði Türk.
„Þau ríki sem hafa áhrif hafa skyldu til að beita þeim núna til að stöðva þessa brjálsemi.“
Íbúar El Obeid hafa búið við umsátursástand í meira en 18 mánuði.
Hætta á fjöldamorðumTürk varaði við því að ástandið líktist aðdraganda að grimmdarverkum sem framin voru í El Fasher og Zamzam-flóttamannabúðunum í Norður-Darfúr á síðasta ári og varaði við því að sama mynstur væri nú að þróast í Norður-Kordofan.
„Við höfum séð þetta leikrit áður,“ sagði hann. „Við getum ekki leyft endurtekningu á þeim grimmdarverkum sem hægt var að koma í veg fyrir og við skrásettum í El Fasher og Zamzam-flóttamannabúðunum í Norður-Darfúr á síðasta ári.“
Mannréttindastjórinn hvatti einnig alla deiluaðila til að tryggja örugga för almennra borgara sem hafa ítrekað neyðst til að flýja ofbeldi í leit að grunnþjónustu.
Türk var tæpitungulaus: „Látum þetta vera skýra viðvörun til heimsins um yfirvofandi mannréttindahamfarir og versnandi mannúðarástand,“ sagði hann. „Heimurinn fylgist með og þeir sem bera ábyrgð á brotunum verða að sæta ábyrgð.“
| # | Наименование новости | Тональность | Информативность | Дата публикации |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Heimsmarkmiðin hafa skilað árangri fyrir milljarða manna, en áskoranir eru enn til staðar | 0 | 5 | 08-07-2026 |
| 2 | Venesúela: 27 lönd taka þátt í leit að eftirlifendum | 0 | 5 | 29-06-2026 |
| 3 | Flóttamönnum fækkar í fyrsta skipti um árabil | 0 | 7 | 15-06-2026 |
| 4 | Rúanda: Frá hatursorðræðu til þjóðarmorðs | -5 | 7 | 17-06-2026 |
| 5 | Sameinuðu þjóðirnar bregðast við jarðskjálftum í Venesúela | 0 | 7 | 26-06-2026 |
| 6 | Óháð nefnd SÞ: börn vísvitandi skotmörk Ísraels | -10 | 7 | 25-06-2026 |
| 7 | Afganistan: ein stærsta flóttamannakreppu heims | 0 | 7 | 08-07-2026 |
| 8 | Hitabylgja: neyðarástand í heilbrigðismálum á heimsvísu | -5 | 7 | 24-06-2026 |
| 9 | Alþjóðlegi flóttamannadagurinn: Þar til allir eru öruggir | 0 | 5 | 16-06-2026 |
| 10 | Evrópa er næststærsti markaður heims fyrir kókaín | 0 | 7 | 26-06-2026 |