Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Óháð nefnd SÞ: börn vísvitandi skotmörk Ísraels

Дата публикации: 25-06-2026 11:52:45

Óháð rannsóknarnefnd um hernumdu palestínsku svæðin. Ísrael. Þjóðarmorð. Börn. Ísraelsk yfirvöld og öryggissveitir hafa vísvitandi beint árásum sínum að palestínskum börnum. Slíkt felur í sér þjóðarmorð, glæpi gegn mannkyni og stríðsglæpi á Gasasvæðinu og stríðsglæpa á Vesturbakkanum. Óháð rannsóknarnefnd um hernumdu palestínsku svæðin, þar á meðal Austur-Jerúsalem, og Ísrael í skýrslu  sem birt var 23. júní. […]
The post Óháð nefnd SÞ: börn vísvitandi skotmörk Ísraels appeared first on Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu - Iceland.


Основное содержимое страницы с новостью.

Árásir Ísraels á nýbura- og mæðraverndarstöðvar á Gaza hafa haft bein áhrif á lífslíkur nýbura og framtíð æxlunar Palestínumanna. © 2025 UNRWA Árásir Ísraels á nýbura- og mæðraverndarstöðvar á Gaza hafa haft bein áhrif á lífslíkur nýbura og framtíð æxlunar Palestínumanna. © 2025 UNRWA

Óháð rannsóknarnefnd um hernumdu palestínsku svæðin. Ísrael. Þjóðarmorð. Börn. Ísraelsk yfirvöld og öryggissveitir hafa vísvitandi beint árásum sínum að palestínskum börnum. Slíkt felur í sér þjóðarmorð, glæpi gegn mannkyni og stríðsglæpi á Gasasvæðinu og stríðsglæpa á Vesturbakkanum. Óháð rannsóknarnefnd um hernumdu palestínsku svæðin, þar á meðal Austur-Jerúsalem, og Ísrael í skýrslu  sem birt var 23. júní.

Sama nefnd komst að þeirri niðurstöðu  á síðasta ári að Ísrael hefði framið gegn Palestínumönnum á Gasasvæðinu. Í skýrslunni segir að umfangsmiklar og kerfisbuþjóðarmorð ndnar hernaðaraðgerðir Ísraels hafi haldið áfram –og leitt til fordæmalausra dauðsfalla, meiðsla og áfalla meðal palestínskra barna.

Muhammad og Abdel misstu báðir útlim þegar UNRWA-skólinn sem þeir leituðu skjóls í varð fyrir árás í Nuseirat á miðsvæðunum. © 2024 UNRWA ljósmynd Muhammad og Abdel misstu báðir útlim þegar UNRWA-skólinn sem þeir leituðu skjóls í varð fyrir árás í Nuseirat á miðsvæðunum. © 2024 UNRWA ljósmynd Óháð nefnd Sameinuðu þjóðanna

Óháð rannsóknarnefnd um hernumdu palestínsku svæðin var skipuð af Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna  27. maí 2021 til að rannsaka ásakanir um brot á alþjóðlegum mannúðar- og mannréttindalögum.

Nefndin ítrekar að vísvitandi árásir á börn séu einn af lykilþáttunum sem staðfesta þjóðarmorðsásetning ísraelskra yfirvalda og öryggissveita til að tortíma Palestínumönnum, að öllu leyti eða að hluta, á Gasa.

„Sönnunargögnin sýna að ísraelskar öryggissveitir hafa vísvitandi beint árásum sínum að palestínskum börnum og drepið þau,“ sagði Srinivasan Muralidhar, formaður nefndarinnar. „Jafnvel eftir vopnahléð í október 2025 er haldið áfram að drepa börn og slasa þau alvarlega, þar sem Ísrael sýnir áframhaldandi vanvirðingu við vopnahléið og þá vernd sem palestínsk börn eiga rétt á samkvæmt alþjóðalögum.“

Drengur situr á dýnu í húsagarði þar sem fólk á flótta hefur leitað skjóls í Palestínuríki. Ljósmynd: UNICEF/UNI463117/El BabaDrengur situr á dýnu í húsagarði þar sem fólk á flótta hefur leitað skjóls í Palestínuríki. Ljósmynd: UNICEF/UNI463117/El Baba Pyntingar og kynferðislegt ofbeldi

Palestínsk börn hafa verið handtekin og beitt pyntingum og annarri alvarlegri illri meðferð í ísraelskum fangelsum og fangageymslum, án þess að upplýsingar fáist um hvar þau eru niðurkomin. Ísraelskar öryggissveitir hafa einnig beitt börn kynferðisofbeldi sem hluta af sameiginlegri auðmýkingu og kúgun.

Árásir Ísraels á nýbura- og mæðraverndarstöðvar á Gasa hafa haft bein áhrif á lífslíkur nýbura og framtíðar æxlunargetu Palestínumanna. Hungursneyð sem Ísrael hefur komið á með herkví og umsátri hefur enn fremur valdið dauða palestínskra barna og haft alvarleg áhrif á heilsu margra annarra.

„Jafnvel þótt sprengjur og byssur þagni á Gasa og Vesturbakkanum munu palestínsk börn ekki einfaldlega ná sér á einni nóttu,“ sagði Muralidhar. „Eyðilegging heilsu þeirra, menntunar og þroska er óafturkræf.“

Kona og barn á Gasasvæðinu.Kona og barn á Gasasvæðinu. Mynd: UNICEF. Sálrænn skaði

Palestínsk börn hafa orðið fyrir gríðarlegum sálrænum skaða, þar sem þau hafa verið svipt allri öryggiskennd og framtíðarvon.

Með því að beina árásum sínum að börnum er Ísrael að grafa undan grundvallarstoðum palestínsks samfélags, veikja lýðfræðilegan lífskraft og heildargetu palestínsku þjóðarinnar til að viðhalda og nýta rétt sinn til að ákveða framtíð sína sem þjóð.

Slösuð börn á bráðabirgðasjúkrahúsi á suðurhluta Gasasvæðisins. Slösuð börn á bráðabirgðasjúkrahúsi á suðurhluta Gasasvæðisins. Mynd: © WHO/Christopher Black Ráðist á tilveru Palestínumanna

„Vernd, umönnun og afkoma palestínskra barna eru óaðskiljanleg frá sjálfsákvörðunarrétti palestínsku þjóðarinnar,“ sagði Muralidhar. „Með því að beina árásum sínum að börnum er Ísrael að ráðast á sjálfa tilveru palestínsku þjóðarinnar og möguleika á að ákveða framtíð sína.“

Nefndin skorar á Ísrael að hætta að fremja brot og glæpi gegn palestínskum börnum og sem hafa áhrif á þau. Nefndin kallar ennfremur eftir því að viðvarandi nærveru Ísraels á hernumda Vesturbakkanum, þar á meðal Austur-Jerúsalem, ljúki, í samræmi við ráðgefandi álit Alþjóðadómstólsins.

Ísraelskir hermenn. Ísraelskir hermenn. Mynd: Timon Studler / Unsplash Einstakar hersveitir nefndar

Nefndin hefur bent á hersveitir innan ísraelsku öryggissveitanna sem bera ábyrgð á drápum og meiðslum palestínskra barna og leggur til við Ísrael og öll aðildarríki að tryggja ábyrgð á slíkum glæpum.

Alþjóðasamfélagið í heild sinni verður að standa við alþjóðlegar lagalegar skuldbindingar sínar og kalla eftir því að átökum linni, að Ísrael bindi enda á hernámið og að ábyrgð og aðgangur fórnarlamba að réttlæti verði forgangsatriði sem óaðskiljanlegur hluti hvers kyns pólitísks ferlis, sem byggir á þýðingarmikilli þátttöku Palestínumanna, þar á meðal barna.

Lesið skýrsluna í heild sinni hér.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Rúanda: Frá hatursorðræðu til þjóðarmorðs-5717-06-2026
2Heimsmarkmiðin hafa skilað árangri fyrir milljarða manna, en áskoranir eru enn til staðar0508-07-2026
3Sameinuðu þjóðirnar vara við yfirvofandi hamförum í Súdan-5719-06-2026
4Venesúela: 27 lönd taka þátt í leit að eftirlifendum0529-06-2026
5Hitabylgja: neyðarástand í heilbrigðismálum á heimsvísu-5724-06-2026
6Oberoende FN-kommission: Israel riktar medvetet in sig på palestinska barn-101025-06-2026
7Evrópa er næststærsti markaður heims fyrir kókaín0726-06-2026
8Sameinuðu þjóðirnar bregðast við jarðskjálftum í Venesúela0726-06-2026
9Tröllaukinn umhverfiskostnaður gallabuxnanna þinna – og hvað er verið að gera í máinu0530-06-2026
10İsrail 13 Filistinli esiri serbest bıraktı! Aileler hastane önünde gözyaşlarına boğuldu0529-06-2026

Классификация: Международные. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: -10. Информативность: 7. Источник: unric.org.