Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Alþjóðlegi flóttamannadagurinn: Þar til allir eru öruggir

Дата публикации: 16-06-2026 13:27:43

Flóttamenn. Alþjóðlegi flóttamannadagurinn 20. júní 2026 er haldinn á tímum þegar loforðið um öryggi er reynt í öllum heimshlutum. Sjötíu og fimm árum eftir samþykkt flóttamannasamningsins frá 1951 er þetta loforð enn ein skýrasta skuldbinding alþjóðasamfélagsins: að fólki sem neyðist til að flýja skuli ekki vera snúið aftur í hættu og eigi að geta lifað […]
The post Alþjóðlegi flóttamannadagurinn: Þar til allir eru öruggir appeared first on Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu - Iceland.


Основное содержимое страницы с новостью.

Alþjóðlegi flóttamannadagurinn Færri einstaklingar voru á flótta árið 2025 í fyrsta sinn í áratug. Mynd: UN Photo/Mark GartenAlþjóðlegi flóttamannadagurinn Færri einstaklingar voru á flótta árið 2025 í fyrsta sinn í áratug. Mynd: UN Photo/Mark Garten

Flóttamenn. Alþjóðlegi flóttamannadagurinn 20. júní 2026 er haldinn á tímum þegar loforðið um öryggi er reynt í öllum heimshlutum. Sjötíu og fimm árum eftir samþykkt flóttamannasamningsins frá 1951 er þetta loforð enn ein skýrasta skuldbinding alþjóðasamfélagsins: að fólki sem neyðist til að flýja skuli ekki vera snúið aftur í hættu og eigi að geta lifað með reisn á meðan það er á flótta.

„Flestir flóttamenn vilja snúa heim, en það verður að vera af fúsum og frjálsum vilja, á öruggan hátt og með reisn,“ sagði Barham Salih, yfirmaður flóttamannamála hjá Sameinuðu þjóðunum. „Fyrir hvern einstakling sem neyðist til að flýja … skiptir vernd máli. Lausnir skipta máli.“

Meira en 117 milljónir manna eru á nauðungarflótta um allan heim. Mynd:UN Photo/UNHCR/M KobayashiMeira en 117 milljónir manna eru á nauðungarflótta um allan heim. Mynd:
UN Photo/UNHCR/M Kobayashi

Færri einstaklingar voru á flótta árið 2025 í fyrsta sinn í áratug. Hins vegar er fjöldi fólks sem neyðist til að yfirgefa heimili sín enn óásættanlega hár.

Meira en 117 milljónir manna eru á nauðungarflótta um allan heim, þar á meðal fjölskyldur sem hafa verið hraktar frá heimilum sínum vegna stríðs í Súdan, ofbeldis í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og langvarandi neyðarástands í Úkraínu, Afganistan, Sýrlandi, Mjanmar og víðar.

Þegar fólki sem flýr hættu er neitað um vernd eykst óöryggið: fjölskyldur eru hraktar á hættulegar leiðir, börn missa af áralöngu námi, konur og stúlkur standa frammi fyrir meiri áhættu og gistisamfélög eru skilin eftir án þess stuðnings sem þau þurfa. Að vernda flóttafólk er því ekki aðeins samúðarverk; það er forsenda stöðugleika og friðar.

Starfsmaður UNHCR heldur á ungu flóttabarni vöfðu í teppi eftir að bátur þeirra lenti á grísku eyjunni Lesbos. Mynd: © UNHCR/Hereward HollandStarfsmaður UNHCR heldur á ungu flóttabarni vöfðu í teppi eftir að bátur þeirra lenti á grísku eyjunni Lesbos. Mynd: © UNHCR/Hereward Holland Alþjóðlegi flóttamannadagurinn: Endurnýjuð samstaða

„Þessir ólgutímar verða að vera stund endurnýjaðrar samstöðu og öflugra aðgerða til að vernda fólk á flótta vegna átaka eða ofsókna,“ sagði António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, í skilaboðum sínum í tilefni af alþjóðlega flóttamannadeginum. „Það felur í sér að halda flóttamannasamningnum í heiðri, en hann hefur bjargað milljónum mannslífa frá því hann var samþykktur fyrir 75 árum í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar.“

Alþjóðlegi flóttamannadagurinn hefur að þessu sinni yfirskriftina : „Þar til allir eru öruggir“, er ákall til ríkisstjórna um að viðhalda sanngjörnum og aðgengilegum hæliskerfum, til gjafa um að viðhalda lífsnauðsynlegum stuðningi, til samfélaga um að taka vel á móti þeim sem neyðast til að flýja og til okkar allra um að verja þá meginreglu að öryggi megi aldrei ráðast af þjóðerni, auði, kynþætti, trú, kyni, stjórnmálaskoðun eða stöðu innflytjenda.

Alþjóðlegi flóttamannadagurinn  2026, „Þar til allir eru öruggir“. Mynd: UN Photo/John IsaacAlþjóðlegi flóttamannadagurinn  2026, „Þar til allir eru öruggir“. Mynd: UN Photo/John Isaac Staðreyndir og tölur
  • Á heildina litið fækkaði flóttafólki um 3 prósent árið 2025 og voru 41,6 milljónir. Í annarri jákvæðri þróun fengu nærri 46.000 ríkisfangslausir einstaklingar ríkisfang í 24 löndum, sem markar mikilvægt skref í viðleitni til að draga úr ríkisfangsleysi.
  • Um mitt ár 2025 voru 117,3 milljónir manna um allan heim enn á nauðungarflótta vegna ofsókna, átaka, ofbeldis, mannréttindabrota eða atburða sem raska alvarlega allsherjarreglu.
  • Lág- og meðaltekjulönd hýsa 71 prósent af flóttafólki heimsins og öðru fólki sem þarfnast alþjóðlegrar verndar, á meðan minnst þróuðu löndin veita 25 prósentum alls hæli.
  • Um mitt ár 2025 var stærsta flóttamannavandamál heims í Súdan, með 13,4 milljónir súdanskra flóttamanna, hælisleitenda og fólks á vergangi innanlands.
  • Þrír af hverjum fjórum flóttamönnum eða fólki á flótta vegna átaka búa í löndum sem standa frammi fyrir mikilli til mjög mikilli hættu á loftslagstengdum áföllum, sem eykur áhættuna sem fólk sem þegar hefur neyðst til að flýja stendur frammi fyrir.

Heimild: UNHCR

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Flóttamönnum fækkar í fyrsta skipti um árabil0715-06-2026
2Heimsmarkmiðin hafa skilað árangri fyrir milljarða manna, en áskoranir eru enn til staðar0508-07-2026
3Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar og Einhverfusamtakanna um drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskóla0014-07-2026
4UNICEF: Loftslagsógnir herja á börn-5716-06-2026
5Venesúela: 27 lönd taka þátt í leit að eftirlifendum0529-06-2026
6Hitabylgja: neyðarástand í heilbrigðismálum á heimsvísu-5724-06-2026
7Rúanda: Frá hatursorðræðu til þjóðarmorðs-5717-06-2026
8Metan: Guterres kallar eftir alþjóðlegu átaki0523-06-2026
9Sameinuðu þjóðirnar bregðast við jarðskjálftum í Venesúela0726-06-2026
10Sameinuðu þjóðirnar vara við yfirvofandi hamförum í Súdan-5719-06-2026

Классификация: Культура. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 5. Источник: unric.org.