Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Hækkun komugjalda án samráðs: BHM varar við áhrifum á forsendur kjarasamninga

Дата публикации: 07-07-2026 00:00:00



Основное содержимое страницы с новостью.

BHM lýsir furðu yfir nýkynntum áformum heilbrigðisráðuneytisins um verulegar hækkanir á komugjöldum í heilbrigðisþjónustu. Bandalagið telur að áformin, sem kynnt eru án samráðs við aðila vinnumarkaðarins, gangi þvert gegn yfirlýstum markmiðum stjórnvalda um sameiginlegt átak til að verja forsendur kjarasamninga í haust.

BHM tekur undir áhyggjur Alþýðusambands Íslands og telur tímasetninguna einstaklega vanhugsaða í ljósi viðkvæmrar stöðu á vinnumarkaði.

Vinnur gegn stöðugleika og markmiðum Þjóðhagsráðs

Samkvæmt tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins stendur til að hækka almenn komugjöld í heilsugæslu og sálfræðiþjónustu um 100% frá 1. ágúst næstkomandi, úr 500 krónum í 1.000 krónur. Þá verði tekið upp nýtt sérstakt komugjald vegna sjúkra-, iðju- og talþjálfunar frá 1. september sem falli utan hins almenna greiðsluþátttökukerfis.

BHM bendir á að þessi áform samrýmist illa þeirri vinnu sem nú stendur yfir á vettvangi Þjóðhagsráðs. Þar hafa fulltrúar stjórnvalda og samtaka launafólks meðal annars fjallað um leiðir til að koma í veg fyrir sjálfvirkar hækkanir á opinberri gjaldtöku og þjónustu. Markmiðið er að stuðla að efnahagslegum stöðugleika og tryggja að forsendur kjarasamninga bresti ekki þegar verðbólguþróun verður metin í haust.

Að ríkið fari á sama tíma fram með gjaldskrárhækkanir fyrir grunnþjónustu er líklegt til að rýra traust milli aðila í yfirstandandi verkefni.

Varhugaverð áform um tekjutengingu og aukna jaðarskatta

Samhliða gjaldskrárhækkunum hefur heilbrigðisráðherra boðað skipan starfshóps sem á að endurmeta greiðsluþátttökukerfið og skoða sérstaklega hvort tekjutengja eigi greiðsluþátttöku í heilbrigðiskerfinu.

BHM lýsir yfir áhyggjum af þeim áformum og kallar eftir skýrum svörum frá ráðherra. Hugmyndir um tekjutengingu grunnþjónustu hins opinbera eru varhugaverðar. Þær flækja kerfið, draga úr gagnsæi og geta aukið hættu á mismunun í aðgengi að lífsnauðsynlegri þjónustu.

Tekjutenging af þessu tagi getur jafnframt unnið gegn hvötum til menntunar og starfsþróunar. Hún eykur jaðarskatta á vinnandi fólk, dregur úr ráðstöfunartekjum fólks með meðaltekjur og getur komið sérstaklega illa við háskólamenntað í sérfræðistörfum sem þegar ber þunga skattbyrði.

Velferð á að tryggja óháð efnahag

Öflugir samfélagslegir innviðir eru forsenda velferðar. Hið opinbera á að tryggja jafnt aðgengi allra að heilbrigðisþjónustu, óháð efnahag. BHM telur að grunnvelferðarþjónusta eigi að vera fjármögnuð í gegnum þrepaskipt skattkerfi, en ekki með beinni og íþyngjandi gjaldtöku á sjúklinga eða vinnandi fólk.

Innan aðildarfélaga BHM starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga sem sinnir og mótar velferðarþjónustu á Íslandi. Bandalagið telur eðlilegt að við grundvallarbreytingar á þeirri þjónustu sé leitað samráðs og sjónarmiða þeirra sem best þekkja. Einhliða ákvarðanir af því tagi sem nú eru boðaðar eru líklegar til að draga úr samstöðu aðila vinnumarkaðarins í þeim verkefnum sem bíða úrlausnar á næstu vikum í þágu efnahagslegs stöðugleika.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Þjónustuver BHM lokað vegna aðalfundar0220-05-2026
2Gissur Kolbeinsson ráðinn framkvæmdastjóri Orlofssjóðs BHM5723-06-2026
3Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir?0521-05-2026
4Vinnudeginum lýkur aldrei hjá mörgum: er kominn tími á reglur um réttinn til að aftengjast?0525-06-2026
5Stöðugleiki á kostnað menntunar?0703-06-2026
6Atvinnurekendur bera hallann af sönnunarskorti ef tímaskráningu er ábótavant0530-06-2026
7AFP: LVMH намерена приобрести транснациональную ювелирную компанию Tiffany0027-10-2019
8Sumaropnun símaþjónustu þjónustuvers0501-06-2026
9Bloomberg: США требуют от Украины согласия на быстрое прекращение огня с РФ0006-03-2025
10Bloomberg: Байден рассматривает возможность введения санкций против Nord Stream 2 AG0018-03-2021

Классификация: Пресс-релизы. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 5. Источник: www.bhm.is.