Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Gissur Kolbeinsson ráðinn framkvæmdastjóri Orlofssjóðs BHM

Дата публикации: 23-06-2026 00:00:00

Stjórn Orlofssjóðs BHM hefur ráðið Gissur Kolbeinsson í nýtt starf framkvæmdastjóra sjóðsins. Ráðningin markar mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu og eflingu sjóðsins og er liður í þeirri stefnu stjórnar að styrkja rekstur hans og þjónustu.

Основное содержимое страницы с новостью.

Orlofssjóður BHM er einn stærsti og öflugasti orlofssjóður landsins og þjónustar félagsfólk allra aðildarfélaga BHM. Sjóðurinn býður upp á fjölbreytta þjónustu og styrki auk þess að reka fjölda orlofshúsa og annarra orlofskosta víðs vegar um land. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að auknum lífsgæðum og fjölbreyttum orlofsmöguleikum fyrir félagsfólk sitt.

Gissur hefur víðtæka reynslu af rekstri, stjórnun og stefnumótun og þekkir starfsemi sjóðsins afar vel. Hann gegndi áður starfi framkvæmdastjóra BHM auk þess sem hann starfaði um árabil sem fjármála- og rekstrarstjóri BHM. Á síðustu árum hefur hann gegnt stjórnunarstarfi hjá Matvælastofnun og komið að fjölmörgum umbóta- og þróunarverkefnum á sviði rekstrar og stafrænna innviða.

Gissur er með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands og B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst. Auk þess hefur hann lokið námi og starfsþróun á sviði stjórnarhátta og stjórnunar.

„Við erum afar ánægð með að fá Gissur til starfa. Þekking hans á starfsemi sjóðsins, reynsla af rekstri og skýr sýn á þróun þjónustu við félagsfólk gerir hann einstaklega vel til þess fallinn að leiða Orlofssjóð BHM inn í næsta vaxtar- og þróunarskeið,“ segir Inga María Leifsdóttir formaður stjórnar OBHM.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Hækkun komugjalda án samráðs: BHM varar við áhrifum á forsendur kjarasamninga0507-07-2026
2Þjónustuver BHM lokað vegna aðalfundar0220-05-2026
3Sumaropnun símaþjónustu þjónustuvers0501-06-2026
4Skerðingar á lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna0523-06-2026
5Engin sátt á vinnu­markaði nema allir sitji við sama borð0530-06-2026
6Första dagen på plats för Edsbyns nya duo: ”Det som kittlar”2301-04-2026
7Baller av Stål(e)7527-06-2026
8Vinnudeginum lýkur aldrei hjá mörgum: er kominn tími á reglur um réttinn til að aftengjast?0525-06-2026
9Максим Орешкин стал новым председателем совета директоров Первого канала0022-12-2020
10Upphandling som en god affär i Örnsköldsvik5712-07-2026

Классификация: Пресс-релизы. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 5. Информативность: 7. Источник: www.bhm.is.