Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að „ekkert geti réttlætt þessi grimmdarverk“ í ávarpi í tilefni af því að þrjú ár eru liðin frá hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael 7. október 2023 Meira en 1.200 Ísraelar og erlendir ríkisborgarar voru drepnir og alls 251 manneskja var numin á brott og flutt sem gíslar inn á Gaza-svæðið, þar á […]
The post Guterres: „Ekkert getur réttlætt“ hryðjuverkaárásir Hamas appeared first on Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu - Iceland.
Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að „ekkert geti réttlætt þessi grimmdarverk“ í ávarpi í tilefni af því að þrjú ár eru liðin frá hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael 7. október 2023
Meira en 1.200 Ísraelar og erlendir ríkisborgarar voru drepnir og alls 251 manneskja var numin á brott og flutt sem gíslar inn á Gaza-svæðið, þar á meðal konur, börn og aldraðir.
Guterres á blaðamannafundi. Mynd: UN Photo/Loey Felipe„Óbreyttir borgarar voru vísvitandi skotmörk og myrtir á heimilum sínum, í samfélögum sínum og á tónlistarhátíð,“ segir António Guterres aðalframkvæmdastjóri í ávarpi sínu. „Fangarar gíslanna beittu þá hryllilegu ofbeldi í haldi, þar á meðal pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð, auk kynferðisofbeldis. Sumir voru drepnir af föngurum sínum eða í átökunum sem fylgdu í kjölfarið. Ekkert getur réttlætt þessi grimmdarverk.“
Í ávarpi sínu segist Guterres persónulega hafa hitt fyrrverandi gísla og aðstandendur fórnarlamba og hlustað á frásagnir þeirra af þeirri raun sem þau gengu í gegnum. „Ég syrgi þá sem voru drepnir í árásunum og þá sem létust í haldi. Þjáningar þeirra og varanleg sorg fjölskyldna þeirra mega aldrei gleymast. Þessi hryllingur má aldrei endurtaka sig.“
Eyðilegging á norðurhlluta Gasa. Mynd: UNRWAÓmældar þjáningar PalestínumannaAðalframkvæmdastjórinn segir að hin hrikalegu átök sem fylgdu í kjölfarið hafi valdið Palestínumönnum á Gaza ómældum þjáningum, þar á meðal gríðarlegu manntjóni, vergangi og eyðileggingu. „Óbreyttir borgarar búa enn við óbærilegar aðstæður. Þjáningum þeirra verður einnig að linna, strax.“
Þótt vopnahléið í fyrra hafi veitt nokkurn létti segir Guterres að það hafi enn ekki skilað öryggi, fullnægjandi mannúðaraðstoð eða trúverðugri leið til endurreisnar og friðar. Hann hvetur alla aðila til að standa að fullu við skuldbindingar sínar og halda áfram í næsta áfanga vopnahlésins.
„Það er kominn tími til að vopnahléið verði varanlegt. Það er kominn tími til að leyfa mannúðaraðstoð í stórum stíl. Og það er kominn tími til að virða alþjóðalög.“
| # | Наименование новости | Тональность | Информативность | Дата публикации |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Guterres: ”Ingenting kan rättfärdiga” Hamas terrorattacker | 0 | 12.76 | 07-10-2026 |
| 2 | Utanríkisráðherra: siðferðislegt hugleysi að neita að setjast niður og semja | 0 | 7.01 | 26-09-2026 |
| 3 | Næsti aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna: umræður frambjóðenda í beinni útsendingu | 0 | 5.95 | 23-07-2026 |
| 4 | Árásir á Alþjóðlega sakamáladómstólinn: 5 atriði sem þú þarft að vita | 0 | 8.41 | 14-07-2026 |
| 5 | Volker Türk: Tíminn er að renna út varðandi gervigreind | 0 | 5.99 | 06-10-2026 |
| 6 | Allsherjarþingið: Gervigreindin í fyrsta skipti í brennidepli | 0 | 7.65 | 29-09-2026 |
| 7 | 800 milljónir ungmenna horfa fram á framtíð án atvinnu | 0 | 9.45 | 14-10-2026 |
| 8 | Gazas sökande efter de döda fortsätter | -2 | 6 | 14-07-2026 |
| 9 | Masriin Hoggantoonni Biyyoota Arabaa Karoora Waa'ee Gaazaa Kan Tiraamp Dhiheessan Irraa Faallaa Waan Tahe Raggaasisan Jette | 0 | 7.54 | 05-03-2025 |
| 10 | Israel: Angriffe der Hamas am 7. Oktober 2023 waren Verbrechen gegen die Menschlichkeit | 0 | 16.61 | 11-12-2025 |