Nýr aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna verður skipaður á þessu ári. Þeir sex frambjóðendur sem hafa gefið kost á sér til að taka við af António Guterres aðalframkvæmdastjóra munu í kvöld taka þátt í opnum borgarafundi sem verður sendur út í beinni útsendingu á netinu á vefsíðu UN TV. Borgarafundurinn er skipulagður af forseta allsherjarþingsins, með […]
The post Næsti aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna: umræður frambjóðenda í beinni útsendingu appeared first on Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu - Iceland.
Nýr aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna verður skipaður á þessu ári. Þeir sex frambjóðendur sem hafa gefið kost á sér til að taka við af António Guterres aðalframkvæmdastjóra munu í kvöld taka þátt í opnum borgarafundi sem verður sendur út í beinni útsendingu á netinu á vefsíðu UN TV.
Borgarafundurinn er skipulagður af forseta allsherjarþingsins, með stuðningi frá Bloomberg, og verður stýrt af blaðamönnum. Þar munu fara fram umræður með hópum frambjóðenda. Þær hefjast klukkan níu fimmtudagsvöldið 23.júlí.
Ferlið 2025–2026Ferlið við val og skipun næsta aðalframkvæmdastjóra byggir á ályktunum allsherjarþingsins og mun lúta meginreglum um gagnsæi og þátttöku allra.
Frambjóðendur eru tilnefndir af aðildarríki eða hópum aðildarríkja og leggja fram framtíðarsýn, ferilskrá og upplýsingar um fjármögnun kosningabaráttu, sem sjá má hér.
Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna: TilnefningarEftirfarandi tilnefningar hafa borist, birtar í stafrófsröð.
Michelle Bachelet (Chile, 1951) var tilnefnd af Chile, Brasilíu og Mexíkó. Hún var forseti Chile (2006-2010 og 2014-2018). Bachelet var forstjóri Jafnréttisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UN Women) (2010-2013) og Flóttamannastjóri samtakanna (UNHCR) (2018-2022). .
María Fernanda Espinosa Garcés (Ekvador, 1964). Espinosa Garcés var tilnefnd af Antigua og Barbuda. Hún var utanríkisráðherra Ekvadors (2007- 2008 og 2017-2018). Hún var fastafulltrúi lands síns hjá Sameinuðu þjóðinum í New York og síðar í Genf. Hún var forseti Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna 2018-2019.
Rafael Mariano Grossi (Argentína,1961). Tilnefndur af Argentínu. Hann hefur verið forstjóri Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) frá desember 2019. Áður var hann sendiherra lands síns í Austurríki, auk Slóveníu, Slóvakíu og alþjóðastofnana í Vínarborg (2013–2019).
Rebeca Grynspan Mayufis (Costa Rica, 1955). Tilnefnd af Costa Rica. Grynspan hefur verið forstjóri Viðskipta- og þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNCTAD) frá 2001. Hún var einnig aðstoðarforstjóri Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna UNDP. Grynspan var varaforseti Costa Rica (1994-1998).
Carolyn Rodrigues Birkett (Guyana, 1973). Hún var tilnefnd af Guyana. Hún var fastafulltrúi lands síns hjá Sameinuðu þjóðunum 2020 og utanríkisráðherra þess (2008-2015.)
Macky Sall (Senegal, 1961). Tilnefndur af Burundi. Sall var forseti Senegals (2012-2024). Áðar var hann forsætisráðherra (2004-2007) og forseti þingsins (2007-2008).
Fylgjast má með umræðunum með því að smella hér.
| # | Наименование новости | Тональность | Информативность | Дата публикации |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Árásir á Alþjóðlega sakamáladómstólinn: 5 atriði sem þú þarft að vita | 0 | 8.41 | 14-07-2026 |
| 2 | ESB og Sameinuðu þjóðirnar: eitt nánasta samstarf sem um getur | 0 | 5.21 | 28-07-2026 |
| 3 | Ísland endurnýjar stuðning sinn við bótasjóð fyrir fórnarlömb með frjálsu framlagi | 0 | 7.6 | 31-07-2026 |
| 4 | Alþjóðlegur dagur frumbyggja: rödd Sama í heilbrigðisþjónustu | 0 | 6.48 | 07-08-2026 |
| 5 | Loftslagsbreytingar : aðvörunarbjöllur hringja hvarvetna | 0 | 7.67 | 29-07-2026 |
| 6 | Alþjóðadagur gegn mansali: Föst í svikamyllu | 0 | 10.66 | 30-07-2026 |
| 7 | Sandur til Sahara: Af hverju jafnvel eyðimerkurríki flytja inn sand | 0 | 6.44 | 27-07-2026 |
| 8 | Stolið gull og gúmmíarabík fjármagna stríðið í Súdan | 0 | 7.22 | 16-07-2026 |
| 9 | Afganskar konur „afmáðar úr opinberu lífi“ | 0 | 9.84 | 13-08-2026 |
| 10 | Mikilvæg steinefni: faldar auðlindir sem knýja hreina orku | 0 | 6.87 | 22-07-2026 |