Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Loftslagsbreytingar : aðvörunarbjöllur hringja hvarvetna

Дата публикации: 29-07-2026 14:44:27

Loftslagsbreytingar eru að ná „martraðarkenndum hæðum“ vegna „fíknar“ mannkyns í jarðefnaeldsneyti að sögn yfirmanns loftslagsmála hjá Sameinuðu þjóðunum. „Loftslagsviðvörunarbjöllurnar hringja alls staðar,“ sagði Simon Stiell, framkvæmdastjóri loftslagsmála hjá Sameinuðu þjóðunum, í yfirlýsingu. „Þar sem búist er við að hitinn rjúki aftur upp í vikunni er hinn hræðilegi kostnaður þessarar loftslagskreppu – bæði mannlegur og efnahagslegur […]
The post Loftslagsbreytingar : aðvörunarbjöllur hringja hvarvetna appeared first on Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu - Iceland.


Основное содержимое страницы с новостью.

Eldar í  Estreito da Calheta í Portúgal. (Safn). Eldar í  Estreito da Calheta í Portúgal. (Safn).   Mynd: ©Unsplash /Michael Held

Loftslagsbreytingar eru að ná „martraðarkenndum hæðum“ vegna „fíknar“ mannkyns í jarðefnaeldsneyti að sögn yfirmanns loftslagsmála hjá Sameinuðu þjóðunum.

„Loftslagsviðvörunarbjöllurnar hringja alls staðar,“ sagði Simon Stiell, framkvæmdastjóri loftslagsmála hjá Sameinuðu þjóðunum, í yfirlýsingu.

„Þar sem búist er við að hitinn rjúki aftur upp í vikunni er hinn hræðilegi kostnaður þessarar loftslagskreppu – bæði mannlegur og efnahagslegur – nú að ná neyðarstigi á landsvísu.“

Simon Stiell ávarpar fund á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um hreina orku síðastliðinn föstudag Simon Stiell ávarpar fund á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um hreina orku síðastliðinn föstudag. Mynd: Saranya Misra/OPGA Af hverju það skiptir máli
  • Yfir 250 þúsund hektarar lands í Evrópu hafa brunnið og 1254 eldar hafa greinst frá ársbyrjun 2026
  • Metgróðureldar geisa nú í Frakklandi, á Spáni og víðar í Evrópu. Hundruð þúsunda hafa neyðst til að flýja að heman og áhrifin á hagkerfi jafnt einstakra héraða sem á landsvísu eru gríðarleg.
  • Í Norður-Afríku nálgast hitinn 49°C, sem stofnar lífi og lífsviðurværi í alvarlega hættu og veldur miklu álagi á sjúkrahús og raforkukerfi
  • Í Chile hafa mannskæðir stormar eyðilagt heimili og mannslíf
  • Í Japan hafa hitamet fallið. Þar hefur hitinn verið lengur samfellt yfir 40°C en dæmi eru um.
  • Gróðureldar í Tasmaniu í Ástralíu Gróðureldar í Tasmaniu í Ástralíu (safn) Mynd: Matt Palmer/Unsplash
  • Skýrar lausnir

Stiell sagði að þessar „vaxandi hamfarir“ væru nú raunveruleiki milljarða manna í heiminum. Jörðin hitnar óðfluga á meðan mannkynið færist of hægt frá jarðefnaeldsneyti yfir í hreina orku – og tekst ekki að vernda skóga nægilega vel.

Vísindin um orsökina eru ótvíræð að hans sögn. Hnattræn hlýnun er knúin áfram af gríðarlegum bruna kola, olíu og gass. Slíkt gerir að hans sögn langvarandi hitabylgjur, alvarleg flóð og ofsafengna ofurstorma tíðari, öflugri og kostnaðarsamari.

„Það sem þarf að gera er jafn skýrt: Hætta notkun kola, olíu og gass hraðar, auka hlut endurnýjanlegra orkugjafa og vernda fólk þar sem áhrifin eru þegar mest,“ sagði Stiell.

Mörg viðkvæm lönd í fremstu víglínu þurfa stuðning til að bregðast við með þeim hraða og í þeim mæli sem nauðsynlegt er til að koma í veg fyrir hamfarir.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Alþjóðadagur gegn mansali: Föst í svikamyllu010.6630-07-2026
2Mikilvæg steinefni: faldar auðlindir sem knýja hreina orku06.8722-07-2026
3Ísland endurnýjar stuðning sinn við bótasjóð fyrir fórnarlömb með frjálsu framlagi07.631-07-2026
4Næsti aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna: umræður frambjóðenda í beinni útsendingu05.9523-07-2026
5ESB og Sameinuðu þjóðirnar: eitt nánasta samstarf sem um getur05.2128-07-2026
6Stolið gull og gúmmíarabík fjármagna stríðið í Súdan07.2216-07-2026
7 Alþjóðlegur dagur frumbyggja: rödd Sama í heilbrigðisþjónustu06.4807-08-2026
8Sofie Junge: loftslagsréttlæti á (fótbolta)vellinum07.9924-07-2026
9Árásir á Alþjóðlega sakamáladómstólinn: 5 atriði sem þú þarft að vita08.4114-07-2026
10Færri en helmingur ungbarna yngri en sex mánaða eru eingöngu á brjósti05.5504-08-2026

Классификация: . Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 7.67. Источник: unric.org.