Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Allsherjarþingið: Gervigreindin í fyrsta skipti í brennidepli

Дата публикации: 29-09-2026 12:41:04

81.allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Gervigreind. Eftir sex daga ræðuhöld á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna bar eitt orð af öllum öðrum: friður. Þegar hinni árlegu allsherjarumræðu lauk á mánudag sagði forseti allsherjarþingsins, Khalilur Rahman, að leiðtogar hefðu staðið frammi fyrir heimi sem einkenndist af átökum, stöðnun í þróun, vaxandi ójöfnuði og ört vaxandi tæknibreytingum. En þrátt fyrir mjög […]
The post Allsherjarþingið: Gervigreindin í fyrsta skipti í brennidepli appeared first on Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu - Iceland.


Основное содержимое страницы с новостью.

Blaðamenn fylgjast með komu þjóðarleiðtoga á 81.allsherjarþinginu. Blaðamenn fylgjast með komu þjóðarleiðtoga á 81.allsherjarþinginu. Mynd: UN Photo/Laura Jarriel G

81.allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Gervigreind. Eftir sex daga ræðuhöld á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna bar eitt orð af öllum öðrum: friður.

Þegar hinni árlegu allsherjarumræðu lauk á mánudag sagði forseti allsherjarþingsins, Khalilur Rahman, að leiðtogar hefðu staðið frammi fyrir heimi sem einkenndist af átökum, stöðnun í þróun, vaxandi ójöfnuði og ört vaxandi tæknibreytingum. En þrátt fyrir mjög ólík sjónarmið heyrði hann sameiginlega sannfæringu: Sameinuðu þjóðirnar eru enn ómissandi.

Khalilur Rahman forseti 81.allsherjarþingsins. Mynd Khalilur Rahman forseti 81.allsherjarþingsins. Mynd:.UN Photo/Loey Felipe

Sex dagar, sex lykilatriði

  • Friður var í fyrirrúmi. Leiðtogar töluðu um hann ekki sem fjarlægt markmið, sagði Rahman forseti, heldur sem brýna vörn fyrir sáttmála Sameinuðu þjóðanna, alþjóðalög og vernd almennra borgara.
  • Þróunarmál eru á tímaþröng. Þar sem aðeins lítill hluti heimsmarkmiðanna um sjálfbæra þróun er á áætlun, gaf hann afdráttarlausan dóm um hvort meira hefði átt að gera: „Svarið hlýtur að vera ótvírætt já.“
  • Ójöfnuður mótar umræðuna. Hann benti á að þau lönd sem glíma við mestu skuldabyrðina, viðkvæmni fyrir loftslagsbreytingum og fjárhagslegar takmarkanir hafa einnig minnst áhrif á þær stofnanir sem móta alþjóðahagkerfið.
  • Mannréttindi reyna á þegar erfitt er að verja þau. Hann benti sérstaklega á meðferð almennra borgara, minnihlutahópa, farandfólks og flóttafólks, og útilokun kvenna og stúlkna frá menntun, atvinnu og opinberu lífi.
  • Gervigreind er komin í sviðsljósið. Fyrir aðeins fjórum árum nefndu aðeins fimm sendinefndir gervigreind í þingsalnum, sagði hann. Í ár gerðu 128 það og spurningar um stjórn, ábyrgð og jafnan aðgang voru áberandi.
  • Traust gæti verið erfiðasti hallinn til að bæta. „Ekki er hægt að skipa fyrir um traust,“ sagði Rahman forseti. „Það verður að ávinna sér það með samræmi milli orða og athafna.“

Sjá einnig hér.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Utanríkisráðherra: siðferðislegt hugleysi að neita að setjast niður og semja07.0126-09-2026
2Volker Türk: Tíminn er að renna út varðandi gervigreind05.9906-10-2026
3Fólk lifir lengur en of lengi við slæma heilsu010.8530-09-2026
4Alþjóðadagur gegn mansali: Föst í svikamyllu010.6630-07-2026
5800 milljónir ungmenna horfa fram á framtíð án atvinnu09.4514-10-2026
6Guterres: „Ekkert getur réttlætt“ hryðjuverkaárásir Hamas012.4207-10-2026
7Kaffi á tímum loftslagsbreytinga08.2930-09-2026
8 Alþjóðlegur dagur frumbyggja: rödd Sama í heilbrigðisþjónustu06.4807-08-2026
9Mikilvæg steinefni: faldar auðlindir sem knýja hreina orku06.8722-07-2026
10Fjarri fyrirsögnunum – Sýrlenskir flóttamenn: jákvæð teikn á lofti012.609-10-2026

Классификация: . Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 7.65. Источник: unric.org.