Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Fólk lifir lengur en of lengi við slæma heilsu

Дата публикации: 30-09-2026 13:45:23

Alþjóðlegur dagur eldra fólks. Við lifum lengur en nokkru sinni fyrr. Eru samfélög okkar viðbúin? Árið 2050 verða 2,1 milljarður manna 60 ára eða eldri. Á alþjóðlegum degi eldra fólks hvetur aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna til stefnumótunar sem gerir lengri ævi að góðri ævi – með valfrelsi, öryggi og virðingu. Einstaklingur sem nær 60 ára aldri […]
The post Fólk lifir lengur en of lengi við slæma heilsu appeared first on Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu - Iceland.


Основное содержимое страницы с новостью.

Eldra fólki fjölgar um allan heim. Eldra fólki fjölgar um allan heim. Myndsamsetning UN News.

Alþjóðlegur dagur eldra fólks. Við lifum lengur en nokkru sinni fyrr. Eru samfélög okkar viðbúin? Árið 2050 verða 2,1 milljarður manna 60 ára eða eldri. Á alþjóðlegum degi eldra fólks hvetur aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna til stefnumótunar sem gerir lengri ævi að góðri ævi – með valfrelsi, öryggi og virðingu.

Einstaklingur sem nær 60 ára aldri árið 2025 gæti búist við að lifa að meðaltali í 21,6 ár til viðbótar, sem er næstum þremur árum lengur en árið 2000.

Fólk lifir lengur í öllum heimshlutum. Um 2050, mun fjöldi áttræðra og eldri hafa meir en tvöfaldast.

Árið 2019 náðu meðalævilíkur á heimsvísu 73,1 ári, en fólk gat aðeins búist við að lifa 63,5 af þeim árum við góða heilsu. Það þýðir 9,6 ár sem lifað er með veikindum eða fötlun.

Alþjóðlegur dagur eldra fólks

En slæm heilsa á efri árum er ekki óumflýjanleg og forvarnir skila verulegum ávinningi.

Stofnanir okkar voru hannaðar þegar líf fólks var styttra. Ríkisstjórnir ættu að samþætta langlífi við heilbrigðis-, atvinnu-, mennta-, almannatrygginga-, húsnæðis-, innviða- og ríkisfjármálaáætlanir. Lengri lífaldur krefst þess að við endurhugsumhvernig heilbrigðiskerfi, vinnumarkaðir, félagsleg vernd, menntun eða húsnæðismál styðja við fólk á lífsleiðinni.

Lengri lífaldur krefst þess að við endurhugsum hvernig heilbrigðiskerfi, vinnumarkaðir, félagsleg vernd, menntun eða húsnæðismál styðja við fólk á lífsleiðinni.

Lengri líftími krefst kerfa sem eru byggð til að endast.

Vissir þú?
  • Fjöldi fólks 60 ára og eldri hefur meira en tvöfaldast, úr um 541 milljón árið 1995 í 1,22 milljarða árið 2025 og er áætlað að hann nái 2,1 milljarði árið 2050. Árið 2080 verður fólk 65 ára og eldra fleira en börn yngri en 18 ára.
  • Lífslíkur á heimsvísu hafa náð 73,5 árum árið 2025, sem er aukning um 8,6 ár frá 1995. Fjöldi fólks 80 ára og eldri vex enn hraðar og er áætlað að hann verði meiri en fjöldi ungbarna um miðjan fjórða áratug þessarar aldar og nái 265 milljónum.
  • Eftir því sem íbúar eldast hefur eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu og félagslegum stuðningi aukist mikið, sérstaklega fyrir þá sem eru með sjúkdóma eins og heilabilun, sem er stór orsök ósjálfstæðis og fötlunar meðal eldra fólks. Sérhæfð umönnun er nú nauðsynleg til að mæta þessum vaxandi þörfum.
  • Árið 2025 eru eftirstandandi lífslíkur við 60 ára aldur mjög mismunandi eftir svæðum, frá 17,4 árum í Afríku til 24,9 ára í Eyjaálfu, sem endurspeglar mikinn ójöfnuð í aðgengi að heilbrigðisþjónustu, félagslegri vernd og efnahagslegum tækifærum.
  • Sjá einnig hér og hér.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Fjölvíð fátækt í heiminum eykst í fyrsta sinn frá 2010010.4913-10-2026
2800 milljónir ungmenna horfa fram á framtíð án atvinnu09.4514-10-2026
3Stigmögnun átaka í Mið-Austurlöndum ógnar fæðuöryggi um 12 milljóna kvenna014.1405-10-2026
4Fjarri fyrirsögnunum – Sýrlenskir flóttamenn: jákvæð teikn á lofti012.609-10-2026
5Volker Türk: Tíminn er að renna út varðandi gervigreind05.9906-10-2026
6Matarsóun: Leið til að takast á við loftslagsbreytingar08.2428-09-2026
7Allsherjarþingið: Gervigreindin í fyrsta skipti í brennidepli07.6529-09-2026
8Utanríkisráðherra: siðferðislegt hugleysi að neita að setjast niður og semja07.0126-09-2026
9Kaffi á tímum loftslagsbreytinga08.2930-09-2026
10Volker Türk: Við þurfum á nýrri Reykjavíkurstund að halda07.0612-10-2026

Классификация: . Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 10.85. Источник: unric.org.