Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Banvænn júnímánuður: drónar á mannaveiðum í Úkraínu

Дата публикации: 15-07-2026 11:22:46

Úkraína. Júnímaður var mannskæðasti mánuður almennra borgara í Úkraínu frá 2022 þegar Rússar gerðu allsherjarinnrás í landið. Mannfall meðal almennra borgara í Úkraínu jókst mikið á fyrri helmingi ársins 2026 vegna aukinna árása Rússa að sögn mannréttindaeftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna í Úkraínu. Að minnsta kosti 293 almennir borgarar létust og 1990 særðust í júní, sem gerir […]
The post Banvænn júnímánuður: drónar á mannaveiðum í Úkraínu appeared first on Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu - Iceland.


Основное содержимое страницы с новостью.

Eyðilegging eftir árás Rússa á Kyiv. Eyðilegging eftir árás Rússa á Kyiv. Mynd: UNOCHA/Viktoriia Andriievska

Úkraína. Júnímaður var mannskæðasti mánuður almennra borgara í Úkraínu frá 2022 þegar Rússar gerðu allsherjarinnrás í landið. Mannfall meðal almennra borgara í Úkraínu jókst mikið á fyrri helmingi ársins 2026 vegna aukinna árása Rússa að sögn mannréttindaeftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna í Úkraínu.

Að minnsta kosti 293 almennir borgarar létust og 1990 særðust í júní, sem gerir hann að banvænasta mánuðinum fyrir almenna borgara síðan í apríl 2022, samkvæmt nýjustu uppfærslu nefndarinnar.

Í maí hafði þegar verið skráður mesti fjöldi mannfalls meðal almennra borgara í meira en fjögur ár, með 282 látna og 1.794 særða, en júní fór fram úr þeim tölum.

Úkraína eftir loftárás Kyiv eftir loftárás. Mynd: Human Rights Monitoring Mission in Ukraine/Anastasiia Honcharuk Úkraína: Aukin hætta

„Tölurnar sýna ógnvænlega stigmögnun með auknu mannfalli meðal almennra borgara, sem stafar af aukinni notkun öflugra vopna sem eru sérstaklega banvæn þegar þau eru notuð á þéttbýlum svæðum,“ sagði Danielle Bell, yfirmaður HRMMU.

„Þessi þróun ætti að vera viðvörun um að áhættan sem almennir borgarar standa frammi fyrir er ekki aðeins viðvarandi heldur eykst bæði að umfangi og flækjustigi,“ bætti hún við.

Á fyrstu sex mánuðum ársins 2026 staðfestu eftirlitsmenn 1396 látna almenna borgara og 7978 særða – 37 prósenta aukning miðað við sama tímabil árið 2025 og 114 prósenta aukning miðað við árið 2024.

Börn eru svipt æskunni í Úkraínu.Úkraína: Börn eru svipt æskunni. Mynd: UNICEF/UNI448430/Hrom Banvænar flugskeyta- og drónaárásir

Aukningin stafaði að mestu af notkun langdrægra vopna – öflugra flugskeyta með víðtæk áhrif ásamt drónum – aðallega í þéttbýliskjörnum fjarri víglínunni, svo sem í höfuðborginni Kænugarði og borginni Dnipro.

Frá janúar til júní jókst mannfall meðal almennra borgara vegna slíkra árása um 60 prósent miðað við árið 2025.

Á sama tíma voru skammdrægir drónar ábyrgir fyrir flestum dauðsföllum og meiðslum almennra borgara á svæðum nálægt víglínunni, sem náðu hæsta mánaðarstigi frá upphafi í júní með 89 látna og 588 særða.

Árásir dag og nótt

„Skammdrægir drónar hafa gjörbreytt umhverfi almennra borgara sem búa nálægt víglínunni. Frásagnirnar sem við heyrum frá almennum borgurum sem hafa flúið frá samfélögum við víglínuna eru mjög samhljóða – og skelfilegar,“ sagði frú Bell.

„Margir lýsa því að þeir finni fyrir því að vera veiddir af skammdrægum drónum einfaldlega fyrir að reyna að sinna daglegum verkefnum eins og að versla mat, fara út með hunda, hjóla, vinna í garðinum eða ferðast í öryggi.“

Eyðilögð rússnesk hergögn til sýnis í Kyiv.Eyðilögð rússnesk hergögn til sýnis í Kyiv. Mynd: Árni Snævarr

Eftirlitsmennirnir ræddu við eldri konu sem var nýlega flutt frá þorpinu Preobrazhenka við víglínuna í Zaporizhzhia-héraði.

„Það voru drónar alls staðar. Allt flaug yfir. Ég vissi ekki hvar ég átti að fela mig,“ sagði hún. „Það er hræðilegur ótti þarna. Það er skotið og ráðist á dag og nótt.“

Úkraína:  svæði sem verða fyrir árásum

Flest mannfall meðal almennra borgara átti sér stað á svæðum undir stjórn úkraínskra stjórnvalda, og í 13 héruðum og borginni Kænugarði. Rannsakendur SÞ staðfestu einnig mannfall meðal almennra borgara á hernumdum svæðum, þó færra miðað við árið 2025.

Mæðgur ganga fram hjá illa skemmdri verksmiðju í Kyiv eftir loftárás. Mæðgur ganga fram hjá illa skemmdri verksmiðju í Kyiv eftir loftárás. Mynd:: © UNICEF/Filippov

Rússar tilkynntu einnig um aukið mannfall meðal almennra borgara á sínu yfirráðasvæði á fyrstu sex mánuðum ársins. Yfirvöld sögðu 250 almenna borgara hafa látist og 1596 særst, sem er 121 prósenta aukning miðað við sama tímabil árið 2025.

Rússar héldu einnig áfram að ráðast á orkuinnviði Úkraínu í júní, samkvæmt uppfærslunni, sem einnig skjalfesti mikla aukningu á árásum Úkraínumanna á orkuframleiðslu-, dreifingar- og flutningsaðstöðu á hernumda Krímskaganum.

Rússar hófu allsherjarinnrás sína í Úkraínu 24. febrúar 2022. Síðan þá hafa mannréttindaeftirlitsmenn SÞ staðfest að minnsta kosti 16 431 almennan borgara látinn og 48 613 særða, þar af meira en 3.700 börn – líklegt er að raunverulegur fjöldi sé mun hærri vegna takmarkaðs aðgangs að upplýsingum.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Alþjóðadagur gegn mansali: Föst í svikamyllu010.6630-07-2026
2Heimsmarkmiðin hafa skilað árangri fyrir milljarða manna, en áskoranir eru enn til staðar0508-07-2026
3Loftslagsbreytingar : aðvörunarbjöllur hringja hvarvetna07.6729-07-2026
4Flóttamönnum fækkar í fyrsta skipti um árabil0715-06-2026
5Rúanda: Frá hatursorðræðu til þjóðarmorðs-5717-06-2026
6Næsti aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna: umræður frambjóðenda í beinni útsendingu05.9523-07-2026
7Ísland endurnýjar stuðning sinn við bótasjóð fyrir fórnarlömb með frjálsu framlagi07.631-07-2026
8ESB og Sameinuðu þjóðirnar: eitt nánasta samstarf sem um getur05.2128-07-2026
9Sandur til Sahara: Af hverju jafnvel eyðimerkurríki flytja inn sand06.4427-07-2026

Классификация: Международные. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 9. Тональность: 0. Информативность: 10.58. Источник: unric.org.