Hungur. El Niño. Tala þeirra sem gætu bæst við hóp hungraðra í heiminum gæti hækkað um nærri 50 milljónir vegna veðurfyrirbærisins El Niño að sögn Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP). Til að bregðast við þessu eru stofnunin og samstarfsaðilar að efla viðleitni í átta löndum til að vernda sum af viðkvæmustu samfélögunum sem þegar glíma við fátækt, átök, […]
The post El Niño: um 50 milljónir kunna að verða hungri að bráð appeared first on Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu - Iceland.
Hungur. El Niño. Tala þeirra sem gætu bæst við hóp hungraðra í heiminum gæti hækkað um nærri 50 milljónir vegna veðurfyrirbærisins El Niño að sögn Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP).
Til að bregðast við þessu eru stofnunin og samstarfsaðilar að efla viðleitni í átta löndum til að vernda sum af viðkvæmustu samfélögunum sem þegar glíma við fátækt, átök, atvinnuleysi og endurteknar öfgar í veðurfari.
Forgangsatriði eru meðal annars að búa löndin undir flóð, þurrka og storma áður en þeir skella á.
El Niño átti þátt í mannskæðum þurrkum í Eþíópíu 2016. Mynd: OCHA/Charlotte Cans
„El Niño er gríðarleg ógn við fæðuöryggi milljóna sem þegar eru viðkvæmar,” sagði Carl Skau, starfandi framkvæmdastjóri WFP. „Því fyrr sem við hjálpum fjölskyldum að búa sig undir þessi veðuráföll, því meiri getu höfum við til að bjarga mannslífum og vernda lífsviðurværi.”
Talað er um „bráðan hungurvand” þegar fólk sem getur ekki uppfyllt daglega fæðuþörf sína.
Helstu atriði
Mæður bíða þolinmóðar eftir matarskammti í fyrri hungursneyð í Sómalíu. OCHA/Ari GaitanisWFP benti á að El Niño-fyrirbærið 2015–2016 hafi haft áhrif á fæðuöryggi 60 til 100 milljóna manna. Fyrstu spár benda til þess að El Niño-fyrirbærið 2026–2027 gæti steypt að minnsta kosti 49 milljónum fleiri í bráða- fæðuóöryggi fyrir lok næsta árs.
Eftir að hafa greint 45 lönd sem þegar eru talin í fæðuóöryggi gerir stofnunin ráð fyrir að heildarfjöldi fólks í bráðum fæðuóöryggi muni aukast úr 225 milljónum í 274 milljónir, sem er aukning um u.þ.b. 22 prósent. Í þessum löndum er búist við að El Niño muni hafa veruleg áhrif á úrkomumynstur, hitastig, flóð og þurrka.
Búist er við að hlutar Mið-Ameríku og sunnanverðrar Afríku verði verst úti vegna veðuröfga, þótt einnig sé spáð verulegum áhrifum í austanverðri Afríku og Suður- og Suðaustur-Asíu.
WFP lagði áherslu á fjölbreytileg áhrif El Niño: „Sum lönd upplifa þegar minni úrkomu en að meðaltali, flóð og óvenju háan hita, á meðan búist er við að aðstæður í öðrum versni á komandi sáningar- og uppskerutímum.”
Burkina Faso: neyðaraðstoð berst til Djibo. Mynd: WFP/Benoit Lognone
Niðurstöður skýrslu WFP:
WFP og Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) hafa þegar hvatt til aukins stuðnings til að hjálpa samfélögum í hættu að búa sig undir El Niño til að vernda mannslíf, lífsviðurværi og fæðuöryggi áður en neyðarástand skapast.
| # | Наименование новости | Тональность | Информативность | Дата публикации |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Alþjóðadagur gegn mansali: Föst í svikamyllu | 0 | 10.66 | 30-07-2026 |
| 2 | Færri en helmingur ungbarna yngri en sex mánaða eru eingöngu á brjósti | 0 | 5.55 | 04-08-2026 |
| 3 | Næsti aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna: umræður frambjóðenda í beinni útsendingu | 0 | 5.95 | 23-07-2026 |
| 4 | Loftslagsbreytingar : aðvörunarbjöllur hringja hvarvetna | 0 | 7.67 | 29-07-2026 |
| 5 | Alþjóðlegur dagur frumbyggja: rödd Sama í heilbrigðisþjónustu | 0 | 6.48 | 07-08-2026 |
| 6 | ESB og Sameinuðu þjóðirnar: eitt nánasta samstarf sem um getur | 0 | 5.21 | 28-07-2026 |
| 7 | Ísland endurnýjar stuðning sinn við bótasjóð fyrir fórnarlömb með frjálsu framlagi | 0 | 7.6 | 31-07-2026 |
| 8 | Afganskar konur „afmáðar úr opinberu lífi“ | 0 | 9.84 | 13-08-2026 |
| 9 | Sandur til Sahara: Af hverju jafnvel eyðimerkurríki flytja inn sand | 0 | 6.44 | 27-07-2026 |
| 10 | Innritun á haustönn 2026 | 0 | 13.16 | 19-06-2026 |