Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Talning ferðamanna hafin við Krossneslaug í Árneshreppi

Дата публикации: 20-10-2026 08:51:00


Ferðamálastofa hefur hafið sjálfvirka talningu á fjölda gesta við Krossneslaug í Árneshreppi á Ströndum. Teljarinn er viðbót við talningarkerfi Ferðamálastofu á vinsælum áfangastöðum ferðamanna vítt og breitt um landið en gögn úr þeim talningum m...

Основное содержимое страницы с новостью.

Ferðamálastofa hefur hafið sjálfvirka talningu á fjölda gesta við Krossneslaug í Árneshreppi á Ströndum. Teljarinn er viðbót við talningarkerfi Ferðamálastofu á vinsælum áfangastöðum ferðamanna vítt og breitt um landið en gögn úr þeim talningum má finna á mælaborði ferðaþjónustunnar. Gögn berast daglega með sjálfvirkum hætti um 4G/5G fjarskiptakerfi landsins. Með þessari viðbót telur Ferðamálastofa fjölda gesta á fjórum vinsælum áfangastöðum á Vestfjörðum; á Bolafjalli, við fossinn Dynjanda, á Látrabjargi og nú við Krossneslaug.

Krossneslaug er perla á austanverðum Vestfjörðum sem sífellt fleiri ferðamenn vita af og heimsækja á ferð sinni um svæðið. Flestir sem leggja leið sína í Norðurfjörð fara í laugina. Laugin er kölluð „óendanleikalaug“ (e. infinity pool), vegna óviðjafnanlegs útsýnis þar sem laugarvatn og haf renna saman í sjónlínu laugargesta. 

Krossneslaug nýtur þeirrar sérstöðu á Vestfjörðum að hún fær heitt vatn úr nálægum Krossneslaugum. Heitt vatn í jörðu er sjaldgæft á Vestfjörðum þar sem þeir eru elsta svæði Íslands og ekki nálægt gossprungunni miklu sem gengur þvert í gegnum landið frá Reykjanesi í suðvestri til Langaness í norðaustri.

Krossneslaug var steinsteypt og tekin í notkun árið 1954 í þessum fámennasta hrepp landsins, 12,5 m x 6 m að stærð. Gestir laugarinnar hafa gefið henni meðaleinkunn upp á 4,8 af 5 mögulegum á Google, sem er til marks um mikla ánægju í garð staðarins

Heimildir: Guidetoiceland, Wikipedia, Google.

Nánari upplýsingar gefur Jóhann Viðar Ívarsson á rannsóknasviði Ferðamálastofu, johann@ferdamalastofa.is, 899 2000.

Myndir: Markaðsstofa Vestfjarða / www.westfjords.is 

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Ný herferð Visit Iceland: Taktu þátt og fáðu aðgang að verkefnasíðunni07.0322-10-2026
2Brjóstakrabbamein: heilbrigðisáskorun á heimsvísu09.0716-10-2026
3Fjarri fyrirsögnunum – Sýrlenskir flóttamenn: jákvæð teikn á lofti012.609-10-2026
4Stöðugleiki á kostnað menntunar?0703-06-2026
5Nidaros vant ellevilt straffe­drama08.7924-10-2026
6Норвегия увеличит добычу газа на шельфе на 8% в 2022 году0004-07-2022
7LÄSARTEXT: Änglamusik i Arnäs kyrka01028-06-2026
8Норвежская Equinor остановила утечку газа на СПГ-заводе Hammerfest0031-05-2023
9Mt. CB continues wayfinding upgrades with transit signs06.6122-07-2026

Классификация: . Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 9. Тональность: 0. Информативность: 5.34. Источник: www.ferdamalastofa.is.