Vitundarmánuður um brjóstakrabbamein. Segja má að sterkasti áhættuþáttur brjóstakrabbameins sé einfaldlega sá að tilheyra kvenkyninu. Um 99% brjóstakrabbameina greinast hjá konum og 0,5–1% hjá körlum. Vitundarmánuður um brjóstakrabbamein, sem haldinn er ár hvert í október, er tækifæri til að styðja fólk sem brjóstakrabbamein hefur áhrif á, draga úr fordómum og minna alla á að snemmgreining […]
The post Brjóstakrabbamein: heilbrigðisáskorun á heimsvísu appeared first on Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu - Iceland.
Brjóstakrabbamein er enn algengasta krabbameinið meðal kvenna um allan heim og næstalgengasta krabbameinið í heildina. Mynd: Unsplash/National Cancer Institute (Vitundarmánuður um brjóstakrabbamein. Segja má að sterkasti áhættuþáttur brjóstakrabbameins sé einfaldlega sá að tilheyra kvenkyninu. Um 99% brjóstakrabbameina greinast hjá konum og 0,5–1% hjá körlum. Vitundarmánuður um brjóstakrabbamein, sem haldinn er ár hvert í október, er tækifæri til að styðja fólk sem brjóstakrabbamein hefur áhrif á, draga úr fordómum og minna alla á að snemmgreining og viðeigandi meðferð getur bjargað mannslífum.
Brjóstakrabbamein er sjúkdómur þar sem afbrigðilegar frumur í brjóstinu vaxa stjórnlaust og mynda æxli. Ef ekkert er að gert geta æxlin dreift sér um líkamann og orðið banvæn. Brjóstakrabbameinsfrumur myndast inni í mjólkurgöngum og/eða mjólkurframleiðandi kirtilblöðrum brjóstsins. Fyrsta stigið (staðbundið mein, in situ) er ekki lífshættulegt og hægt er að greina það snemma. Krabbameinsfrumur geta dreift sér í nærliggjandi brjóstvef (íferð). Þá myndast æxli sem valda hnútum eða þykknun.
Umfang vandansÁrið 2024 greindust áætlað 2,4 milljónir kvenna með brjóstakrabbamein og 694 000 létust af völdum þess á heimsvísu. Brjóstakrabbamein greinist í öllum löndum heims hjá konum á öllum aldri eftir kynþroska en tíðnin eykst með hækkandi aldri.
Kona heldur á bleikri slaufu í tilefni af vitundardegi um brjóstakrabbamein, 1. október 2020. Mynd: Unsplash/Angiola HarryHnattrænar áætlanir sýna sláandi ójöfnuð í byrði brjóstakrabbameins eftir þróunarstigi landa. Til dæmis greinist 1 af hverjum 12 konum með brjósta krabbamein á lífsleiðinni í löndum með mjög háa vísitölu um þróun lífsgæða (HDI) og 1 af hverjum 71 konu deyr af völdum þess. Í löndum með lága HDI-vísitölu greinist hins vegar 1 af hverjum 27 konum með brjósta krabbamein á lífsleiðinni og 1 af hverjum 48 konum deyr af völdum þess.
Hverjir eru í áhættu?Ákveðnir þættir auka hættuna á brjóstakrabbameini, þar á meðal kvenkyn, hækkandi aldur, offita, skaðleg áfengisneysla, fjölskyldusaga um brjóstakrabbamein, fyrri geislun, frjósemissaga (t.d. aldur við fyrstu blæðingar og aldur við fyrstu meðgöngu), tóbaksnotkun og hormónameðferð eftir tíðahvörf. Um 80% brjóstakrabbameina greinast hjá konum sem hafa enga breytanlega áhættuþætti brjóstakrabbameins aðra en kyn (kvenkyn) og aldur (yfir 40 ára).
Tengslin milli lifunar brjóstakrabbameins og efnahagsþróunar eru sláandi: í hátekjulöndum lifa 83 prósent greindra kvenna, en í lágtekjulöndum deyr meira en helmingur kvenna sem greinast með brjóstakrabbamein af völdum þess. Mynd: UNICEF GhanaFjölskyldusaga um brjóstakrabbamein eykur hættuna á brjóstakrabbameini, en flestar konur sem greinast með brjóstakrabbamein hafa enga þekkta fjölskyldusögu um sjúkdóminn. Þótt engin fjölskyldusaga sé þekkt þýðir það þó ekki endilega að kona sé í lítilli áhættu.
EinkenniBrjóstakrabbamein getur valdið ýmsum samsettum einkennum, einkum á síðari stigum. Einkenni brjóstakrabbameins geta meðal annars verið:
Fólk með óeðlilegan hnút í brjósti ætti að leita læknis, jafnvel þótt hnúturinn sé ekki sársaukafullur. Flestir hnútar í brjósti eru ekki krabbamein. Meiri líkur eru á að meðferð við illkynja hnútum í brjósti beri árangur þegar þeir eru litlir og hafa ekki dreift sér í nærliggjandi eitla.
Árið 2021 kom Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin á fót hnattrænu átaki gegn brjóstakrabbameini (GBCI) til að leiða saman hagaðila víðs vegar að úr heiminum og úr ýmsum geirum með það sameiginlega markmið að lækka dánartíðni af völdum brjóstakrabbameins á heimsvísu um 2,5% á ári og koma þannig í veg fyrir 2,5 milljónir dauðsfalla af völdum brjóstakrabbameins á heimsvísu fyrir árið 2040. Þrjár meginstoðir aðgerða eru: heilsuefling til snemmgreiningar, tímanleg sjúkdómsgreining og heildstæð meðferð brjóstakrabbameins.
Vissir þú?| # | Наименование новости | Тональность | Информативность | Дата публикации |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Matarsóun: Leið til að takast á við loftslagsbreytingar | 0 | 8.24 | 28-09-2026 |
| 2 | Kaffi á tímum loftslagsbreytinga | 0 | 8.29 | 30-09-2026 |
| 3 | Fólk lifir lengur en of lengi við slæma heilsu | 0 | 10.85 | 30-09-2026 |
| 4 | Stigmögnun átaka í Mið-Austurlöndum ógnar fæðuöryggi um 12 milljóna kvenna | 0 | 14.14 | 05-10-2026 |
| 5 | Fjölvíð fátækt í heiminum eykst í fyrsta sinn frá 2010 | 0 | 10.49 | 13-10-2026 |
| 6 | 800 milljónir ungmenna horfa fram á framtíð án atvinnu | 0 | 9.45 | 14-10-2026 |
| 7 | Volker Türk: Tíminn er að renna út varðandi gervigreind | 0 | 5.99 | 06-10-2026 |
| 8 | Fjarri fyrirsögnunum – Sýrlenskir flóttamenn: jákvæð teikn á lofti | 0 | 12.6 | 09-10-2026 |
| 9 | Volker Türk: Við þurfum á nýrri Reykjavíkurstund að halda | 0 | 7.06 | 12-10-2026 |
| 10 | COP17, COP31: hvers vegna tvær COP-ráðstefnur? | 0 | 14.09 | 15-10-2026 |