Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Fæðingarorlof - íslenska ríkið skaðabótaskylt vegna rangrar innleiðingar

Дата публикации: 24-09-2026 00:00:00



Основное содержимое страницы с новостью.

Hæstiréttur dæmdi 23. september íslenska ríkið til að greiða konu 2,78 milljónir króna í skaðabætur vegna þess að reglur EES-samningsins um frjálsa för launafólks og almannatryggingar höfðu ekki verið innleiddar með fullnægjandi hætti.

Málið á sér langan aðdraganda. Konan starfaði sem læknir í Danmörku frá 2015 til 2019, flutti síðan aftur til Íslands og eignaðist barn árið 2020. Hún fékk aðeins lágmarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði þar sem íslensk lög gerðu ekki ráð fyrir að við útreikning greiðslna yrði tekið mið af stöðu farandlaunþega sem hafði starfað í öðru EES-ríki.

Konan leitaði fyrst réttar síns vegna ákvörðunar Fæðingarorlofssjóðs. EFTA-dómstóllinn komst í ráðgefandi áliti að þeirri niðurstöðu að miða bæri greiðslur við tekjur launþega með sambærilega starfsreynslu og hæfni í sambærilegu starfi hér á landi. Hæstiréttur staðfesti árið 2024 að íslensku lögin samrýmdust ekki EES-skuldbindingum Íslands. Ríkið var þó sýknað í því máli þar sem skýrt orðalag íslensku laganna gaf ekki svigrúm til EES-samræmdrar lögskýringar.

Þannig fékk konan ekki greiðslurnar sem hún átti samkvæmt EES-rétti í fyrra málinu.

Í nýja málinu krafðist konan þess í stað skaðabóta úr hendi ríkisins. Hæstiréttur taldi að þótt nokkur óvissa hefði verið um réttarstöðuna þegar reglurnar voru innleiddar árið 2011 hefði dómur Evrópudómstólsins í Bergström-málinu (C-257/10) síðar sama ár skýrt að farandlaunþegi mætti ekki verða verr settur varðandi fæðingarorlofsgreiðslur fyrir það eitt að hafa starfað í öðru EES-ríki.

Hæstiréttur lagði áherslu á að ríki verði að fá hæfilegan tíma til að laga lög að dómaframkvæmd Evrópu- og EFTA-dómstólsins, en sá tími sé ekki takmarkalaus. Þegar atvik málsins urðu höfðu liðið níu ár frá Bergström-dómnum og íslensk lög voru ekki leiðrétt fyrr en árið 2025. Vanræksla ríkisins var því talin nægilega alvarleg til að stofna skaðabótaábyrgð.

Ríkið var dæmt til að greiða konunni 2.782.238 krónur í skaðabætur, auk dráttarvaxta og 1,5 milljóna króna í málskostnað.

Dómurinn hefur þýðingu langt út fyrir fæðingarorlof. Hann staðfestir að langvarandi vanræksla við að tryggja einstaklingum réttindi samkvæmt EES-samningnum getur leitt til skaðabótaábyrgðar ríkisins jafnvel þótt íslensk lög standi í vegi fyrir því að réttindunum verði framfylgt beint í upphaflegu málinu.

Tengill á dóm Hæstaréttar

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Viðbrögð Landssamtakanna Þroskahjálpar og Geðhjálpar, ÖBÍ réttindasamtaka og Umhyggju félags langveikra barna vegna umsagnarbeiðna um drög að svörum Íslands við spurningalista (List of Issues) sérfræðinefndar SÞ um réttindi fatlaðs fólks0523-06-2026
2Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áform um frumvarp til laga um Stafræna heilsu0514-07-2026
3Námskeið fyrir sjóðfélaga Starfsþróunarsjóðs Félags háskólakennara06.9430-09-2026
4INSÄNDARE: Tre reformer för Sveriges löntagare01028-07-2026
5Landsréttur dæmir uppsögn hjá Sjúkratryggingum Íslands ólögmæta – BHM metur næstu skref01017-10-2026
6INSÄNDARE: Stanna i kön0003-07-2026
7INSÄNDARE: Så utvecklar vi infrastrukturen i Örnsköldsvik01019-07-2026
8Börnin sem þurfa mestan stuðning mæta afgangi-3610-06-2026
9DEBATT: Det svenska ödesvalet08.7915-09-2026

Классификация: . Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 9. Тональность: 0. Информативность: 10. Источник: www.bhm.is.