Ríkisstjórnin hefur lýst sig reiðubúna til að takmarka hækkanir almennra krónutölugjalda og gjaldskráa ríkisstofnana við 2,5% í stað 5,2%, ef kjarasamningar halda og aðrir leggja sitt af mörkum. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur lýst yfir vilja til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% árið 2027, í sama tilgangi. Dæmi eru einnig um að fyrirtæki hafi boðað tímabundna verðfrystingu eða takmörkun tiltekinna verðhækkana við 2,5%.