Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Navi Pillay fyrrverandi mannréttindastjóri SÞ hlýtur friðarverðlaun Nóbels

Дата публикации: 09-10-2026 09:43:34

Suðurafríski mannréttindalögfræðingurinn Navanethem „Navi“ Pillay hlýtur friðarverðlaun Nóbels árið 2026.Pillay gegndi starfi mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna frá 2008 til 2014. Norska Nóbels-nefndin sagði í yfirlýsingu að Pillay hefði átt stóran þátt í að tryggja að stríðsglæpir, glæpir gegn mannkyni og þjóðarmorð væru sótt til saka. „Á tímum tilvistarlegra áskorana – þar á meðal fleiri stríða og […]
The post Navi Pillay fyrrverandi mannréttindastjóri SÞ hlýtur friðarverðlaun Nóbels appeared first on Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu - Iceland.


Основное содержимое страницы с новостью.

Navi Pillay á blaðamannafundi Navi Pillay á blaðamannafundi

Suðurafríski mannréttindalögfræðingurinn Navanethem „Navi“ Pillay hlýtur friðarverðlaun Nóbels árið 2026.Pillay gegndi starfi mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna frá 2008 til 2014.

Norska Nóbels-nefndin sagði í yfirlýsingu að Pillay hefði átt stóran þátt í að tryggja að stríðsglæpir, glæpir gegn mannkyni og þjóðarmorð væru sótt til saka.

„Á tímum tilvistarlegra áskorana – þar á meðal fleiri stríða og átaka en heimurinn hefur séð í langan tíma – eru alþjóðalög ekki lengur aðeins viðbót við frið og öryggi. Þau eru algjör nauðsyn,“ sagði í yfirlýsingunni.

Stýrði nefnd um herteknu svæðin

Pillay fæddist árið 1941 í Durban, ólst upp á tímum aðskilnaðarstefnunnar og varð ein af fyrstu konum af indverskum uppruna í Suður-Afríku til að starfa sem lögmaður. Hún varði baráttufólk gegn aðskilnaðarstefnunni og barðist gegn mismunun í aðbúnaði fanga.

Eftir lok aðskilnaðarstefnunnar varð hún dómari við Alþjóðlega sakamáladómstólinn fyrir Rúanda, þar sem hún átti þátt í að skapa tímamótafordæmi sem viðurkenndu nauðgun sem þjóðarmorðsverknað. Síðar gegndi hún embætti dómara við Alþjóðlega sakamáladómstólinn. Navi Pillay var áður formaður óháðrar alþjóðlegrar rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna um hernumdu palestínsku svæðin en lét af því hlutverki síðla árs 2025.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Fjarri fyrirsögnunum – Sýrlenskir flóttamenn: jákvæð teikn á lofti012.609-10-2026
2Fjölvíð fátækt í heiminum eykst í fyrsta sinn frá 2010010.4913-10-2026
3Volker Türk: Tíminn er að renna út varðandi gervigreind05.9906-10-2026
4Stigmögnun átaka í Mið-Austurlöndum ógnar fæðuöryggi um 12 milljóna kvenna014.1405-10-2026
5– Hun er ikke kvalifisert til å vinne fredsprisen07.2216-10-2026
6800 milljónir ungmenna horfa fram á framtíð án atvinnu09.4514-10-2026
7Volker Türk: Við þurfum á nýrri Reykjavíkurstund að halda07.0612-10-2026
8Brjóstakrabbamein: heilbrigðisáskorun á heimsvísu09.0716-10-2026
9COP17, COP31: hvers vegna tvær COP-ráðstefnur?014.0915-10-2026
10Концертный тур сорван: рэпера Navai арестовали на два месяца после задержания01015-10-2026

Классификация: . Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 8.48. Источник: unric.org.