Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Andri Valur Ívarsson ráðinn framkvæmdastjóri BHM

Дата публикации: 01-09-2026 00:00:00

Stjórn BHM hefur ráðið Andra Val Ívarsson í starf framkvæmdastjóra BHM.

Основное содержимое страницы с новостью.

1. september 2026

Stjórn BHM hefur ráðið Andra Val Ívarsson í starf framkvæmdastjóra BHM.

Andri Valur Ívarsson

Andri Valur hefur starfað sem lögmaður BHM frá vordögum 2017 og er því aðildarfélögum BHM að góðu kunnur. Hann þekkir starfsemi BHM vel og hefur á undanförnum árum komið að fjölbreyttum verkefnum fyrir bandalagið og aðildarfélög þess, ekki síst á sviði vinnumarkaðs- og kjaramála.

Andri Valur er með BA-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og BA- og MA-gráðu í lögfræði frá sama skóla auk lögmannsréttinda. Andri Valur býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu á vinnumarkaðs- og kjaramálum og hefur um langt skeið fylgst náið með þróun, uppbyggingu og hagsmunabaráttu stéttarfélaga háskólamenntaðra.

Andri Valur Ívarsson og Kolbrún Halldórsdóttir

„Stjórn BHM er afar ánægð með ráðningu Andra Vals í starf framkvæmdastjóra. Hann þekkir starfsemi bandalagsins og aðildarfélaga þess mjög vel og býr yfir víðtækri reynslu og fagþekkingu á þeim málefnum sem eru kjarninn í starfsemi BHM. Andri Valur nýtur mikils trausts og stjórnin er sannfærð um að hann muni leiða starf bandalagsins áfram af festu og metnaði,“ segir Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM.

Andri Valur segist þakklátur fyrir traustið sem honum er sýnt með ráðningunni. „Það hefur verið bæði gefandi og lærdómsríkt að starfa fyrir BHM undanfarin ár. Ég þekki því vel þann mikla mannauð og metnað sem býr innan bandalagsins og aðildarfélaga þess. Ég hlakka til að takast á við nýtt hlutverk og halda áfram að vinna að öflugri hagsmunagæslu fyrir háskólamenntað fólk í góðu samstarfi við stjórn, starfsfólk og aðildarfélög BHM,“ segir Andri

Stjórn BHM býður Andra Val velkominn í starf framkvæmdastjóra BHM.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Námskeið hjá Endurmenntun HÍ í boði fyrir félagsfólk Starfsþróunarseturs BHM05.9217-09-2026
2Ný könnun: Staða háskólafólks á húsnæðismarkaði05.4627-08-2026
3Fjárlagafrumvarpið ekki í takt við atvinnustefnu stjórnvalda07.6314-09-2026
4Europeisk toppverv til Medietilsynets direktør0513-01-2026
5NAR-ráðstefna um rannsóknir og þróun010.7210-09-2026
6Анн Линде останется главой МИД в новом правительстве Швеции0009-07-2021
7Fastighet i Gävle har bytt ägare016.6729-07-2026
8Основатель GloraX Андрей Биржин возглавил компанию01022-07-2026
9Jurist blir chef för Revisorsinspektionen08.0116-04-2026
1069-åring ny ägare till radhus0209-07-2026

Классификация: Пресс-релизы. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 6.78. Источник: www.bhm.is.