Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Ný könnun: Staða háskólafólks á húsnæðismarkaði

Дата публикации: 27-08-2026 00:00:00

Niðurstöður umfangsmikillar könnunar á stöðu háskólamenntaðs fólks á húsnæðismarkaði voru kynntar í dag. Könnunin var unnin af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands fyrir BHM í samstarfi við eftirfarandi samtök utan bandalagsins: Byggingarfræðingafélag Íslands, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Lyfjafræðingafélag Íslands, Læknafélag Íslands, Stéttarfélag tölvunarfræðinga og Verkfræðingafélag Íslands. Könnunin var gerð fyrir tilstilli Lífeyris- og lánanefndar BHM, sem hafði frumkvæði að þessari greiningu á stöðu háskólafólks á húsnæðismarkaði.

Основное содержимое страницы с новостью.

Alls bárust svör frá 5.799 félagsmönnum og voru niðurstöður vigtaðar eftir aldri svo þær endurspegli þýðið sem best. Niðurstöðurnar draga upp áhugaverða mynd af stöðu háskólafólks á húsnæðismarkaði.

Meðal þess sem kemur fram er að:

· Mikill meirihluti svarenda býr í eigin húsnæði, þar af 74% með húsnæðisláni og 15% í skuldlausu húsnæði. Þrátt fyrir það á hluti hópsins erfitt með að standa undir mánaðarlegum húsnæðiskostnaði.

· Skýr munur er á erfiðleikum við að greiða húsnæðiskostnað meðal þeirra sem eru með húsnæðislán eftir því hvort fólk er að greiða af námsláni eða ekki. Hlutfall þeirra sem eiga erfitt með greiðslurnar er 16-19% hjá þeim sem eru ekki að greiða af námsláni en hækkar í 28% hjá þeim sem greiða af námsláni. Þetta sýnir að námslánabyrði ofan á húsnæðislán hefur veruleg áhrif á greiðslugetu heimilanna.

· Yngra háskólafólk reiðir sig í auknum mæli á fjárhagsaðstoð fjölskyldu eða annarra til að komast inn á fasteignamarkaðinn. Um 62% svarenda 34 ára og yngri hafa fengið fjárhagslega aðstoð til húsnæðiskaupa frá öðrum en lánastofnunum, samanborið við 20% meðal þeirra sem eru 55 ára og eldri.

· Háskólamenntað fólk vinnur jafnframt mikið en um 37% svarenda segjast vera í meira en 100% heildarstarfshlutfalli, en flestir (60%) eru í 80–100% starfshlutfalli. Húsnæðiseign og fjárhagsleg staða hópsins kunna því að einhverju leyti að byggjast á miklu vinnuframlagi, sem vekur spurningar um jafnvægi vinnu og einkalífs.

Heildarmyndin er því sú að háskólafólk kemst almennt inn á fasteignamarkaðinn, en það vinnur mikið og æ fleiri þurfa aðstoð frá öðrum en lánastofnunum til að kaupa húsnæði. Samspil námslána og húsnæðiskostnaðar vekur sérstaka athygli: hópurinn sem fjárfesti í menntun sinni ber tvöfalda greiðslubyrði á sama tíma og hann reynir að koma sér þaki yfir höfuðið.

Nánari umfjöllun má finna í skýrslunni.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Hagkorn BHM: Menntun borgar sig en húsnæðiskaup reynast erfið07.7601-09-2026
2Námskeið hjá Endurmenntun HÍ í boði fyrir félagsfólk Starfsþróunarseturs BHM05.9217-09-2026
3Ný skýrsla Hagfræðistofnunar: Launamunur minnkar milli hópa og geira06.421-08-2026
4Mögulegar truflanir á Mínum síðum09.8401-09-2026
5Fjárlagafrumvarpið ekki í takt við atvinnustefnu stjórnvalda07.6314-09-2026
6Virði menntunar og staða á húsnæðismarkaði06.2602-09-2026
7Áhyggjur af áhrifum fjöldauppsagna hjá Reykjavíkurborg08.1427-08-2026
8Enginn launatöfluauki fyrir árið 2026015.0710-09-2026
9NAR-ráðstefna um rannsóknir og þróun010.7210-09-2026
10Framkvæmdastjórn ESB opnar samráð um nýjar reglur um gæðastörf07.222-09-2026

Классификация: . Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 5.46. Источник: www.bhm.is.