Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Ferðamálaskýrsla OECD 2026: Ávinningur, seigla og sveigjanleiki

Дата публикации: 10-07-2026 15:24:00

Nýverið kom út skýrsla á vegum OECD um ferðamál og inniheldur hún helstu tölfræði og lýsingu á tilhögun ferðamála í öllum OECD löndunum. Skýrslan nefnist OECD Tourism Trends & Policies 2026 og er gefin út annað hvert ár að jafnaði. Meðal efnis se...

Основное содержимое страницы с новостью.

Nýverið kom út skýrsla á vegum OECD um ferðamál og inniheldur hún helstu tölfræði og lýsingu á tilhögun ferðamála í öllum OECD löndunum. Skýrslan nefnist OECD Tourism Trends & Policies 2026 og er gefin út annað hvert ár að jafnaði. Meðal efnis sem finna má í skýrslunni eru sérkaflar um hvert og eitt land, þar með talið Ísland.

Skýrslan er mikil að vöxtum og er hennar jafnan beðið með nokkurri eftirvæntingu en samanburðurinn sem hún býður upp á getur nýst með ýmsum hætti. Að því leyti eru kaflarnir um hvert og eitt land gagnlegastir.

Efling viðnámsþróttar með sjálfbærni að leiðarljósi

Í skýrslunni er lögð áhersla á þörfina fyrir sveigjanlega og samræmda stefnumótun til að beina ferðaþjónustunni í átt að samkeppnishæfni, viðnámsþoli og sjálfbærni að sjálfsögðu. Jafnframt eru þar birt gögn og rannsóknarniðurstöður um umfang, uppbyggingu og mikilvægi ferðaþjónustuhagkerfisins.

Í þemaköflum er fjallað um leiðir til að auka samfélagslegan ávinning af ferðaþjónustu og styrkja getu greinarinnar til að laga sig að öfgafullum veðuratburðum.

Sérkafli um Ísland

Hvert land á sem fyrr segir sinn kafla í skýrslunni og í vefútgáfu hennar er hægt að fara beint á kaflann um Ísland. Auk tölfræði og gunnupplýsinga um ferðaþjónustuna er í skýrslunni sagt frá ýmsu af því sem verið er að gera hér á landi á vegum stjórnvalda hvað varðar stefnumótun og skipulag greinarinnar.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Þrjú ferðaskrifstofuleyfi felld niður – Lýst eftir kröfum í Ferðatryggingasjóð09.0220-07-2026
2lðgjald til Ferðatryggingasjóðs verður 2,5% fyrir árið 2026011.426-06-2026
3Ferðaþjónusta í Evrópu stenst áskoranir breyttra tíma015.1321-07-2026
4Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um grænbók um kynjaða fjárlagagerð: Stöðumat og valkostir0524-04-2026
5Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026-2030, 593. mál0512-05-2026
6Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026-2029, 597. mál0505-05-2026
7Samráð um öryggi við Sólheimajökul06.8220-07-2026
8Phú Thọ khai mạc lễ hội 'Tam Đảo - Điểm hẹn trên mây' năm 20260524-05-2026
9Atvikavaktin komin vel af stað - Yfir hundrað þátttakendur á fyrstu örnámskeiðum06.0422-07-2026
10Kubernetes Orchestration & Management Tools in 20260518-01-2026

Классификация: . Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 9.35. Источник: www.ferdamalastofa.is.