Frístundahús
Fastur liður hjá nemendum á öðru ári í húsasmíði er að byggja frístundahús. Um er að ræða timburhús sem nemendur byggja frá grunni. Þetta verkefni er nemendum afar lærdómsríkt því það kemur inn á svo marga þætti sem húsasmiðir þurfa að kunna skil á.
Á undanförnum árum hafa húsasmíðanemar í VMA oftast byggt 40-50 fermetra frístundahús en sl. vetur var brugðið út af þeirri meginreglu og byggð þrjú 20 fermetra frístundahús fyrir Hamra – útilífs- og miðstöð skáta sem rekur tjaldsvæðið á Hömrum. Eitt þeirra húsa er ekki alveg að fullu byggt en nemendur á öðru ári í vetur ljúka við það sem upp á vantar.
Meginverkefni nemenda í vetur er bygging þriggja slíkra frístundahúsa sem fara einnig upp á Hamra. Húsin eru byggð í einingum, bæði utandyra og innan. Í gær, fimmtudag, var tveimur af þremur húsum púslað saman, forsmíðaðar veggeiningarnar hífðar á sinn stað og þakstykkin ofan á. Þriðja húsið verður síðan sett saman að nokkrum vikum liðnum.
Bragi Óskarsson, kennari í byggingadeild, segir ekki veita af því að hafa þrjú hús í byggingu á sama tíma til þess að hafa næg verkefni fyrir þennan fjölmenna nemendahóp – tæplega fjörutíu nemendur. Því var nemendahópnum skipt í þrjá minni hópa.
Til gamans er vert að rifja upp byggingu frístundahúsa VMA síðustu þrettán árin - frá árinu 2013:
Haustið 2025
Haustið 2024
Haustið 2023
Haustið 2022
Haustið 2021
Haustið 2020
Haustið 2019
Haustið 2018
Haustið 2017
Haustið 2016
Haustið 2015
Haustið 2014
Haustið 2013
| # | Наименование новости | Тональность | Информативность | Дата публикации |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Vélstjórnin hefur mikið aðdráttarafl | 0 | 10 | 21-09-2026 |
| 2 | Vélstjórnarnemar í hvalaskoðun | 0 | 8.4 | 11-09-2026 |
| 3 | Viljayfirlýsing mennta- og barnamálaráðherra og bæjarstjórans á Akureyri um viðbyggingu við VMA | 0 | 5.62 | 18-09-2026 |
| 4 | Nýnemar í byggingadeild færðu Kjarnaskógi tvö útiborð að gjöf | 0 | 7.43 | 16-09-2026 |
| 5 | Yfir 200 gönguleiðir á vef Ferðamálastofu | 0 | 7.33 | 11-09-2026 |
| 6 | Blessað barnalán í VMA! | 0 | 7.56 | 22-09-2026 |
| 7 | Héðinn Unnsteinsson með fyrirlestur í VMA | 0 | 6.69 | 18-09-2026 |
| 8 | Sex þreyttu sveinspróf í vélvirkjun | 0 | 5.43 | 24-09-2026 |
| 9 | Frumvarp um náttúru- og innviðagjald lagt fram í Samráðsgátt | 0 | 5.33 | 23-09-2026 |
| 10 | Ómar Magni er yngsti nýsveinninn í rafvirkjun á Íslandi! | 0 | 6.94 | 26-09-2026 |