Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Söguleg viljayfirlýsing um að bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði

Дата публикации: 07-08-2026 00:00:00

Stjórnvöld, aðilar vinnumarkaðarins og Samtökin ’78 sameina krafta sína til að efla jafnrétti og öryggi hinsegin fólks á vinnumarkaði

Основное содержимое страницы с новостью.

Ragnar Þór Ingólfsson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Bjarndís Helga Tómasdóttir, Finnbjörn Hermannsson, Magnús Þór Jónsson, Jón Ólafur Halldórsson, Kolbrún Halldórsdóttir, Sonja Ýr Þorbergsdóttir við undirskriftina í dag.

Félags- og húsnæðismálaráðherra, fulltrúi dómsmálaráðherra og forystufólk Alþýðusambands Íslands (ASÍ), BHM, BSRB, Kennarasambands Íslands (KÍ), Samtaka atvinnulífsins (SA) og Samtakanna ’78 undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um aukið samstarf í þágu jafnréttis, fjölbreytileika og inngildingar á íslenskum vinnumarkaði.

Með undirrituninni skuldbinda aðilar sig til að vinna markvisst að því að bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði.

Öruggur, inngildandi og fordómalaus vinnumarkaður

Rannsóknir sýna að þrátt fyrir skýran lagaramma um jafna meðferð upplifir hinsegin fólk enn í auknum mæli mismunun, fordóma og verri líðan á vinnumarkaði en aðrir hópar. Sérstaklega á það við um trans- og kynsegin fólk.

Markmið samstarfsins er að efla þekkingu, stuðla að öryggi og vellíðan starfsfólks og þróa úrræði sem styðja við inngildandi starfsumhverfi. Aðilar eru sammála um að jafnrétti og fjölbreytileiki eru mannréttindi og stuðla að betri árangri vinnustaða og sterkara samfélagi.

Aðgerðahópur mun leiða verkefnið áfram

Sem hluti af samstarfinu verður stofnaður aðgerðahópur sem fær það hlutverk að vinna að fræðsluefni, aðgerðum og rannsóknum.

Hópurinn mun byggja starf sitt á rannsóknum og greiningum á stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði, sem og þeirri reynslu og þekkingu sem safnast hefur í gegnum Hinsegin vottun Samtakanna ’78 og leiðbeiningar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) um inngildandi vinnustaði.

Mikilvægt skref í átt að inngildandi vinnumarkaði

Aðilar viljayfirlýsingarinnar telja að aukið jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding skili ávinningi fyrir starfsfólk, vinnustaði og samfélagið allt. Með undirrituninni er stigið mikilvægt skref í átt að vinnumarkaði þar sem öll njóta virðingar og öryggis og sömu tækifæra.

Undirritendur viljayfirlýsingarinnar eru:

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrir hönd dómsmálaráðherra

Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna ’78

Finnbjörn Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands

Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands

Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Áhyggjur af áhrifum fjöldauppsagna hjá Reykjavíkurborg08.1427-08-2026
2Hagkorn BHM: Menntun borgar sig en húsnæðiskaup reynast erfið07.7601-09-2026
3Fjárlagafrumvarpið ekki í takt við atvinnustefnu stjórnvalda07.6314-09-2026
4Virði menntunar og staða á húsnæðismarkaði06.2602-09-2026
5Ný skýrsla Hagfræðistofnunar: Launamunur minnkar milli hópa og geira06.421-08-2026
6Námskeið hjá Endurmenntun HÍ í boði fyrir félagsfólk Starfsþróunarseturs BHM05.9217-09-2026
7Ber Støre stanse gruveavfall i fjorden: – Ulovlig og straffbart05.9206-07-2026
8Минсельхоз заявил, что повышение пошлин на вино переориентирует спрос на продукцию из РФ0025-07-2023
9Совфед одобрил закон об учете виноградных насаждений0007-06-2023

Классификация: Экономика. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 9. Тональность: 0. Информативность: 9.02. Источник: www.bhm.is.